Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu: Falleg og vel skipulögð 6 herbergja íbúð á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr við Veghús í Grafarvogi Eignin er samtals 211,8 fm (þar af bílskúr 24,2 fm og geymsla 13 fm) Bókið skoðun hjá Ólafi löggiltum fasteignasala s. 865-8515 /
[email protected] Lýsing eignar: Forstofa : parket á gólfi, fataskápar. Setustofa : rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, parket á gólfi, útgengi á stórar svalir sem snúa í suður, opin við eldhús. Eldhús : flísar á gólfi, hvítir efri skápar, dökkir neðri skápar, eyja sem unnt er að sitja við, gluggi. Baðherbergi : flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski og skápar á vegg, baðkar með flísalagðri hlið, upphengt salerni, gluggi. Svefnherbergi 1 : rúmgott herbergi, parket á gólfi, innangengt í rúmgott fataherbergi með eikarskápum. Svefnherbergi 2 : gott herbergi, parket á gólfi, fataskápur. Þvottahús : dúkur á gólfi, innrétting, skolvaskur, tengi fyrir vélar. Gengið upp steyptan og parketlagðan stiga með glerhandriði upp á efri hæð íbúðarinnar. Alrými/sjónvarpshol: rúmgott með parketi á gólfi, gluggi. Svefnherbergi 3 : rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápur. Svefnherbergi 4 : tvöfalt samliggjandi herbergi, parket á gólfi, fataskápur, hefðbundinn gluggi og loftgluggi, útgengt út á stigagang efri hæðar. Baðherbergi : flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting, upphengt salerni, flísalagður sturtuklefi með glerhurð, gluggi. Geymsla : á efstu hæð: mjög rúmgóð geymsla, vegghillur á tveimur hliðum, gluggi. Bílskúr : innbyggður í húsið, rúmgóður, hiti, rafmagn og rennandi vatn. Teppi í stigahúsi var endurnýjað 2023 og stigahús málað. Góð íbúð á fjölskylduvænum stað - stutt í skóla og leikskóla - íþróttasvæði Fjölnis í næsta nágrenni Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu
[email protected] Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 /
[email protected]