Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur 5503000 - www.fasteignamidstodin.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson

Eyvindará I Fljótsdalshéraði , 701 Egilsstaðir Tilboð

0 m², lóð, herbergi

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu jörðina Eyvindará I landnúmer 157589 Fljótsdalshéraði.
Um er að ræða jörðina Eyvindará 1, Fljótsdalshéraði. Enginn húsakostur. Í Fljótsdælu er Eyvindará sögð ,,eitthvert bjargmest land í héraðinu og þokkaland allmikið". Þar er sagður haugur Helga Droplaugarsonar. Hann er vís og friðlýstur og Helgi þar tryggilega geymdur, því að eitilhörð klöpp er í hólnum undir rekustungudjúpu jarðvegslagi. Sömuleiðis er friðlýst rústabunga, þar sem bærinn er talinn hafa staðið fyrr. Eyvindará er bændaeign frá fornu fari, mun þó hafa verið Skriðuklausturseign um tíma fyrr á öldum. Uppsalir hjáleiga þaðan. Talið er, að Miðhús og Dalhús og ef til vill Þuríðarstaðir hafi byggst úr Eyvindarárlandi fyrr á öldum. Landshættir og endingar bæjarnafna (-hús) benda til, að það sé rétt. Núverandi landamörk eru Eyvindaráin, sem bærinn dregur nafn af, að suðvestan niður undir flugvöll, að utan Finnsstaðamörk um það bil mitt á milli bæja, að ofan á kafla við Uppsalaá, og auk þess á Eyvindará spildu fremur mjóa milli Uppsala að utan og Miðhúsa, Steinholts og Miðhúsaár (frá Gufufossi við Lönguhlíð) að innan upp á Fjarðarheiðarbrún. Neðan heiðar skiptast móahæðir og ásar á við mýrar. Á Eyvindarárnesi við ána eru harðvellisbakkar, gott slægjuland. Fjallið er hjöllótt, vel gróið og gott beitiland. Vegurinn upp á Fjarðarheiði liggur að mestu í landi Eyvindarár. Eyvindará er vel til búskapar fallin, ræktunarskilyrði hagfelld og jörðin vel í sveit sett. Hlunnindi eru af malarnámi. Góðir virkjunarmöguleikar.
Tilvísunarnúmer 10-1802.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm. 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat0 kr.
  • Fasteignamat1.945.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð 7. mar. 2015
  • Flettingar19100
  • Skoðendur16552
  • 0 m²
  • herbergi



Senda fyrirspurn vegna Eyvindará I Fljótsdalshéraði, 701 Egilsstaðir

Verð:Tilboð Stærð: 0 m² Tegund:Jörð/lóð Herbergi:
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignamiðstöðin

Sími: 5503000
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
www.fasteignamidstodin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Magnús Leopoldsson

Eignin var skráð 7 mars 2015
Síðast breytt 3 mars 2023

Senda á vin eignina Eyvindará I Fljótsdalshéraði, 701 Egilsstaðir

Verð:Tilboð Stærð: 0 m² Tegund:Jörð/lóð Herbergi:
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignamiðstöðin

Sími: 5503000
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
http://www.fasteignamidstodin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Magnús Leopoldsson

Eignin var skráð 7 mars 2015
Síðast breytt 3 mars 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store