Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðjón Hjörleifsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1945
svg
747,9 m²
svg
0 herb.

Lýsing

VERÐ: TILBOÐ

Um er að ræða eignina Dalabúið sem er í heild sinni 747,9 m2 að stærð þar af glæsileg séríbúð 129,5 m2 að stærð ásamt stórum afgirtum sólpalli. Gólfflötur íbúðarinnar er töluvert meiri en gefið er upp hjá FMR. Þar sem hluti hennar er undir súð.  Þá er geymsla 140,7m2 og fjós/geymslur 477,7 m2.  Eignin hefur verið nýtt undir hesthús, safngeymsla, verkstæði og íbúð. Íbúðin hefur verið leigð út til stéttarfélags undanfarin ár og er með öll tilskilin leyfi til slíks. 
Nánari lýsing íbúðar:

Anddyri, flísar á gólfi, gengið úr anddyri upp á efri hæð, góður og breiður stigi er uppá loftið.   
Hol, flísar á gólfi, panill á veggjum og í lofti.
Stofa, flísar á gólfi, panill á veggjum og í lofti.
Eldhús, ágæt innrétting, flísar á gólfi, panill á veggjum og í lofti.
Snyrting, nuddsturtuklefi, flísar á gólfi, panill á veggjum og lofti. 
Góður stigi á milli hæða. Gengið úr anddyri upp á efri hæð.
Hol/stofa, plastparket á gólfi. Hvíttaður panill á veggjum og í lofti. Þakgluggi
Gengið úr stofu út á stóra, afgirtan og sólríkan sólpall. 
Herbergi 1, plastparket á gólfi, hvíttaður panill á veggjum og í lofti. Þakgluggi
Herbergi 2, plastparket á gólfi, hvíttaður panill á veggjum og í lofti. Þakgluggi
Herbergi 3, plastparket á gólfi, hvíttaður panill á veggjum og í lofti. Þakgluggi
Húsnæði þetta býður upp á óteljandi möguleika, þarna liggja tækifærin til framkvæmda fyrir hugmyndaríka og vinnusama einstaklinga.  Íbúðin eykur enn á þann möguleika, þar sem hægt er að nýta hana sem híbýli eða til útleigu meðan á framkvæmdum stendur.  Stór lóð er í kringum eignina sem eykur frekari möguleika á að nýta eignina enn frekar í aðra starfsemi.  Þarna gæti verið frábær aðstaða fyrir hótel, ferðaþjónustufyrirtæki, íbúðir, hesthús, geymslur og í raun hvaða atvinnustarfsemi sem er, allt er mögulegt.    
 

Heimaey fasteignasala

Heimaey fasteignasala

Bárustígur 1, 900 Vestmannaeyjar
phone
Heimaey fasteignasala

Heimaey fasteignasala

Bárustígur 1, 900 Vestmannaeyjar
phone