






























Hóll Borgarbyggð , 311 Borgarnes Tilboð
969,9 m², lóð, 11 herbergi
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 117, 201 Kópavogi, sími 550 3000 er með til sölu jörðina Hól landnúmer 134770, 311 Borgarbyggð.
Á Hóli hefur verið búið með sauðfé og kýr en í dag er aðeins búið með sauðfé. Vetrarfóðraðar ær eru um 150 og framleiðsluréttur í sauðfé um 135 ærgildi. Bærinn stendur á lágum hól, snertispöl frá suðausturbakka Norðurár. Þeim megin árinnar þar sem er mjó láglendisræma og gott slægjuland. Land Hóls takmarkast að vestan af landi Hafþórsstaða, að sunnan af landi Lundar í Þverárhlíð. Að austan af landi Háreksstaða og norðan af löndum Dýrastaða og Hvamms um Norðurá og Hólsey, en þar á Hóll góð slægjulönd beggja megi ár svo og engjastykki á Desey. Þessi slægjulönd hafa nú öll verið ræktuð. Í hálsinum suðaustan túns skiptast á mýrarsund, auk þess er þar grasi og lygi vaxnar brekkur. Þar á milli eru svo mosa vaxin, ávöl holt og mólendi. Gott beitiland er á jörðinni. Hóll á laxveiðirétt í Norðurá og upprekstur á Hellistungur. Landstærð jarðarinnar er um 450 hektarar þar af tæpir 40 hektarar tún. Húsakostur á jörðinni er íbúðarhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr frá árinu 1979 stærð 224 m2. Húsið er sambyggt við eldri hluta frá1962 sem er 144m2. Snyrtilegt hús en hluti af neðri hæð hefur ekki verið full inréttaður. Véla- og verkfærageymsla, 60,5m2 að stærð, frá árinu 1964 og sambyggð véla/verkfærageymsla, 60,5m2 að stærð frá árinu 1990. Fjós, 117,3 m2 að stærð, frá árinu 1971. Mjólkurhús, 17,7 m2 að stærð, frá árinu 1971. Hlaða, 112,7 m2 að stærð, frá árinu 1969. Fjárhús, 176,2 m2 að stærð, frá árinu 1933. Hlaða, 57m2 að stærð, frá árinu 1938. Nýlega kominn ljósleiðari.
Áhugaverð jörð að mörgu leiti t.d. fyrir ferðaþjónustu m.a. vegna fjölda herbergja í íbúðarhúsinu og vegna staðsetningar.
Tilvísunarnúmer 10-2179
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000 sjá einnig www.fasteignamidstodin.is
tölvupóstfang fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm. 899 5600 tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 tölvupóstfang sjofn@fasteignamidstodin.is

- Brunabótamat112.345.000 kr.
- Fasteignamat52.409.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð31. mar. 2019
- Flettingar8894
- Skoðendur7891
- 969,9 m²
- 11 herbergi
- 8 svefnherbergi





























