




























































Reykjastræti 7 (414), 101 Reykjavík 76.500.000 kr.
75,2 m², fjölbýlishús, 2 herbergi
Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Íbúð 414 er á fjórðu hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar. Íbúðin er skráð 63,8 fm og til viðbótar er 8,7 fm geymsla. Komið er inn í rúmgóða forstofu sem leiðir inn til stofu/eldhús. Til hliðar við forstofu er baðherbergi með sturtu og rými fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Útgengt er á 7,9 fm svalir sem snúa í suður. Íbúðin hefur aðgang að bílageymslu sem ekið er í frá innkeyrslu Hörpu og einnig Hafnartorgs.
Nánari upplýsingar veita Jason K. Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515 eða jko@miklaborg.is Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is Óskar R. Harðarson hdl og lögg. fasteignasali í síma 661-2100 eða oskar@miklaborg.is Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
- Brunabótamat0 kr.
- Fasteignamat22.600.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð21. sep. 2020
- Flettingar499
- Skoðendur432
- 75,2 m²
- Byggt 2019
- 2 herbergi
- 1 baðherbergi
- 1 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Lyfta

Þröstur Þórhallsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
throstur@miklaborg.is
569-7000



















































