























Grensásvegur 12 - (402), 108 Reykjavík 39.900.000 kr.
59,7 m², fjölbýlishús, 2 herbergi
24 íbúðir eru til sölu í húsinu!
***BÓKIÐ SKOÐUN***
Allar nánari upplýsingar veitir Garðar B. Sigurjónsson, löggiltur fasteignasali í síma 898-0255 eða gardarbs@trausti.is eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða gudbjorg@trausti.is.
Íbúð: 0402
Hæð: 4. hæð
Tegund: 2ja herbergja
Stærð: 59,7 fm.
Geymsla: Innan íbúðar.
Innra skipulag.
Íbúðin er á 4. hæð. Í íbúðinni er alrými, þ.e. stofa og eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi, geymsla á gangi íbúðar og rúmgóðar svalir. Mjög er vandað til íbúðanna á allan hátt. Hurðir og innréttingar eru hvítar. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum. Myndir eru úr sýningaríbúð.
Íbúðin:
Anddyri: Anddyri er með fataskáp.
Eldhús: Ný og snyrtileg innrétting. Tæki eru frá Electrolux eða sambærilegt.
Stofa: Er opin við eldhús, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi: Einstaklega rúmgott, innangeng sturta, falleg innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Innan íbúðar.
Lóð: Er fullfrágengin.
Húsið:
Nýr inngangur með myndvélasíma. Nýuppgert stigahús með lyftu og aðalinngang af 1. hæð. Á hverri hæð eru átta íbúðir. Á 4. og efstu hæð hússins eru mjög gott útsýni og rúmgóðar svalir. Á hæð íbúðanna eru geymslur eða þær innan íbúða. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með gólfefnum og baðherbergi verða flísalögð.
Umhverfið:
Grensásvegur er miðsvæðis og í göngufæri við alla helstu þjónustu sem Reykjavíkur býður uppá. Göngufæri er í Skeifuna, Laugardalinn og í almenningssamgöngur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0.3% af endanlegu brunabótarmati.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

- Brunabótamat22.900.000 kr.
- Fasteignamat35.150.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð13. jan. 2021
- Flettingar237
- Skoðendur203
- 59,7 m²
- Byggt 1968
- 2 herbergi
- 1 baðherbergi
- 1 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Lyfta



















