























Boðagrandi 2A, 107 Reykjavík 68.900.000 kr.
129,4 m², fjölbýlishús, 4 herbergi
Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is. Hvetjum alla til að virða nándartakmörk og mæta með grímu.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 129,4 fm og þar af er geymsla 10,5 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri með innbyggðum skáp og flísar á gólfi.
Stofa rúmgóð með parket á gólfi. Útgegnt á stórar norð-austur svalir með góðu útsýni.
Eldhús snyrtilegt með góðri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Útgengt á suðursvalir við góðan borðkrók.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með innbyggðum skápum og parket á gólfi. Útgengt á norð-austur svalir.
Svefnherbergi II rúmgott með innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III rúmgott með parket á gólfi. Möguleiki á að stækka st
ofuna yfir í þetta herbergi.
Baðherbergi rúmgott með góðri sturtu, snyrtilegri innréttingu, skolskál og góðum glugga. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús og geymsla er við hlið eldhússins með glugga og flísar á gólfi.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins.
Bílastæði íbúðarinnar er sérmerkt og á besta stað í bílakjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Mjög stutt í bæði skóla og leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Jón Bergdal, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

- Brunabótamat42.970.000 kr.
- Fasteignamat61.150.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð19. feb. 2021
- Flettingar789
- Skoðendur675
- 129,4 m²
- Byggt 2000
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Lyfta
- Þvottahús



















