



































Fitjás 12, 260 Reykjanesbær 72.500.000 kr.
207,3 m², einbýlishús, 6 herbergi
NÝTT Í SÖLU - FALLEGT OG VEL STAÐSET 207,3 FM EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ FJÓRUM SVEFNHERBERGJUM OG TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR VIÐ FITJÁS 12 Í REYKJANESBÆ
ATH.OPIÐ HÚS AÐ FITJÁS 12, MIÐVIKUDAGINN 24. FEBRÚAR FRÁ KL 17.30 TIL 18.00. MUNA EFTIR GRÍMUM OG VIRÐA 2JA METRA REGLUNA
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, og Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali, sími:693-3356, kynna: fallegt 207,3 fm einbýlishús við Fitjás 12 í Reykjanesbæ.
Húsið er timbureiningahús klætt með múrssteinsklæðningu og valmaþaki. Íbúðarýmið er 168 fm og tvöfaldi bílskúrinn er 39,3 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgott anddyri með skáp og flísum á gólfi. Stofurnar eru stórar og bjartar með flísum á gólfi. Útgengi út á verönd með skjólgirðingum og heitum rafmagnspotti. Eldhúsið er rúmgott með hvítri innréttingu og nýlegum tækjum. Lítil gestasnyrting með handlaug og salerni, flísar á gólfi. Herbergin fjögur er öll rúmgóð með skápum og parketi á gólfi, búið er opna eitt herbergið inn í hjónaherbergið, en auðvelt að breyta því til baka og hurðin er til. Baðherbergi með sturtu og hornbaðkari, innréttingu og glugga, flísar á veggjum og gólfi. Rúmgott þvottahús með innréttingu og skápum, flísar á gólfi og úr því er gengið inn í tvöfaldan bílskúr. Á bílskúrnum er umgegnishurð sem er við hlið útihurðar í húsið. Yfir bílskúrnum er kalt geymsluloft. Gólhitalagnir eru í húsinu. Lóðin er frágengin, hellulagt plan og sólpallur með skjólgirðingum og heitum rafmagnspotti. Stutt í skóla, leiksskóla, matvörubúðir og aðra þjónustu.
Þetta er í heild sinni vandað, vel skipulagt og fjölskylduvænt einbýlishús á góðum stað í Reykjanesbæ.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali S. 693-3356 heidar@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 20 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 693-3356.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2020, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

- Brunabótamat66.810.000 kr.
- Fasteignamat56.850.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð20. feb. 2021
- Flettingar1091
- Skoðendur870
- 207,3 m²
- Byggt 2007
- 6 herbergi
- 2 baðherbergi
- 4 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Hjólastólaaðgengi
- Sólpallur
- Garður
- Þvottahús

Heiðar Friðjónsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
heidar@valholl.is
693-3356
































