


























Laugavegur 86-94, 101 Reykjavík 76.000.000 kr.
124,6 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
HÚSASKJÓL KYNNIR:
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT OG/EÐA SKRÁ SIG Í OPIÐ HÚSFalleg rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi, bilastæði á baklóð. Íbúðin er skráð 124,6 fm, þar af er geymsla 7,1 fm við hlið íbúðarinnar.
Lýsing eignar:
Gengið er inn í forstofu, á hægri hönd er þvottahús með innréttingu, flísar á gólfi. Komið er inn í bjart opið rými sem er stofa / sjónvarpsstofa / borðsstofa, gólfsíður gluggi, úgengt út á suður svalir. Opið inn í eldhús, efri og neðri skápar, eyja með skápum, innfelld lýsing í lofti, uppþvottavél fylgir. Gengið inn á gang, en þar eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Bæði svefnherbergin eru mjög rúmgóð með góðu skápaplássi. Fallegt gegnheilt olíuborið eikarparket er á allri íbúðinni. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, baðkar og upphengt salerni, stór gluggi. Geymslan er 7.1 fm og er við hlið íbúðarinnar, parket á gólfi.
Á baklóð er einkabílastæði fyrir húsið. Undir húsinu er svo bílastæðakjallari og er innangengt í hann. Hægt að kaupa aðgang að honum hjá Bílastæðassjóði fyrir hóflegt gjald.
Einstaklega rúmgóð og falleg íbúð með sólríkum suðursvölum í hjarta miðbæjarins þar sem örstutt er í alla þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali í email: audun@husaskjol.is eða í síma: 894-1976
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

- Brunabótamat50.150.000 kr.
- Fasteignamat68.450.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 5. mar. 2021
- Flettingar2749
- Skoðendur2437
- 124,6 m²
- Byggt 2006
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Suðursvalir
- Lyfta
- Garður
- Þvottahús

Auðun Ólafsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Húsaskjól fasteignasala
Ármúli 4-6, 108 Reykjavík
audun@husaskjol.is
894-1976





















