Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
hæð

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

953 Spánn - Costa Blanca

41.900.000 kr.

Fasteignanúmer

F5002811

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR.
*RÚMGÓÐ FJARKAHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ*- * STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD*
AÐEINS TVÖ HÚS Í BOÐI


Rúmgott og vel skipulagt fjarkahús á frábærum stað á La Zeniasvæðinu, stutt frá Villamartin. Fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi.  Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt göngufæri í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast fjallegt heimili fyrir fjölskylduna á fínu verði í frábæru umhverfi þar sem sólin skín í a.m.k. 300 daga á ári.

Allar upp lýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is, GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Um er að ræða glæsilega og rúmgóða eign á þremur hæðum,  með sér inngangi. Á aðalhæð er gengið inn í rúmgott alrými, eldhús vel tengt borðstofu og stofu. Rúmgott svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi og útgengi út á stórar svalir. Í kjallara eru tvö góð herbergi, sjónvarpsstofa/alrými, rúmgott baðherbergi og stórt þvottahús/geymsla. Samtals eru því 5 svefnherbergi og 3 baðherbergi, ásamt stofu og sjónvarpsstofu. Góð sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði. Mjög rúmgott og vel staðsett hús fyrir stórfjölskylduna.

Eignin afhendist með öllum rafmagnstækjum í eldhúsi, húsgögnum og húsbúnaði ásamt aircon með hita og kælingu.

Sér bílastæði á lokaðri lóð fylgir.

Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolses og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýja og vandaða eign á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Aðeins tvær eignir í boði.
Verð:  279.000 Evrur + kostn. (ISK. 41.900.000 + kostn. (gengi 1Evra/150 ISK)
 
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir til Spánar.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir  ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar:  sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, air con, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.