














Ásvallagata 54, 101 Reykjavík Tilboð
221,6 m², einbýlishús, 6 herbergi
HÚSASKJÓL KYNNIR:
KOMIN AFTUR Á SKRÁ! Þessi eign er komin aftur á skrá eftir að hafa fallið á fjármögnunarfyrirvara.
Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali veitir allar upplýsingar í síma 766-8484 eða bodvar@husaskjol.is
Reisulegt einbýlishús á þessum vinsæla stað í 101 Reykjavík. Eignin þarfnast talsverðra endurbóta, en þó hefur ýmislegt verið gert skv. seljanda , s.s. þak endurnýjað í kringum aldamót ásamt dreni við austur og suður hliðar hússins, svalir yfirbyggðar ofl. Auk þess voru raflagnir endurnýjaðar í öllu húsinu á sama tíma. Tvö herbergi í kjallara eru í útleigu, og geta þeir leigjendur fylgt eða farið eftir samkomulagi allra hlutaðeigandi. Stór og góð lóð umlykur húsið.
Til gamans má geta þess að skv. seljanda var húsið í eigu Stefáns Jóhanns Stefánssonar, fyrrum, forsætisráðherra hér á árum áður.
Skipting eignar:
Kjallari:
Tvö stór herbergi, annað þeirra í útleigu og hitt nýtist sem geymsla. Annað minna herbergi er í útleigu. Rúmgóð geymsla, salerni og eldhús með þvottaaðstöðu eru einnig í kjallara. Gengt er á milli kjallara og miðhæðar, en einnig er sérinngangur í kjallarann að aftanverðu.
Miðhæð:
Eldhús, borðstofa og stofa sem liggur í L og væri hægt að stúka herbergi af úr annari þeirra. Forstofa, gestasalerni og stigahol upp á efstu hæð.
Efsta hæð:
Þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi eru á efstu hæð.
Húsið er hluti af heilstæðri götumynd fallegra "funkis" húsa.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

- Brunabótamat65.850.000 kr.
- Fasteignamat99.900.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð17. maí. 2022
- Flettingar2579
- Skoðendur2251
- 221,6 m²
- Byggt 1936
- 6 herbergi
- 3 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Garður
- Þvottahús

Böðvar Reynisson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Húsaskjól fasteignasala
Ármúli 4-6, 108 Reykjavík
bodvar@husaskjol.is
766-8484








