Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður J. Tyrfingsson
Haraldur Björnsson
Vista
raðhús

Kinnargata 42

210 Garðabær

160.000.000 kr.

641.797 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2504557

Fasteignamat

15.450.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
249,3 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Garður
svg
Bílskúr
svg
Suðvestur Svalir

Lýsing

Garðatorg eignamiðlun kynnir: Glæsilegt vel staðsett endaraðhús á tveim hæðum ásamt innbyggðum bílskúr á þessum eftirsótta stað í Urriðaholti í Garðabæ, aðkoma að húsi er að efri hæð. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, þrjú baðherbergi ásamt þvottahúsi og fjölskyldurými. Rúmgóð stofa og eldhús í opnu og björtu rými með fallegu útsýni og góðum svölum. 
Eignin er afhent á byggingastigi 4, (gamla Ist51/2001 staðall). Fullbúið að utan, einangrað og klætt að utan með álklæðningu, þakkanturinn frágenginn. Lóðin grófjöfnuð.  Gluggar eru ál/tré. Húsin verða byggð í samræmi við nútímaþarfir, kröfur og staðla. Húsið er nú í byggingu og er afhending skv. nánara samkomulagi.
Húsið er sérstaklega vel staðsett í suðurhlíð með útsýni yfir vatnið og er gólfvöllurinn Oddur í göngufæri. Einnig eru góðir skólar, leikskólar og veitingastaðir í göngufæri.
 
Það ber að athuga að 3D myndir eru til að gefa vísbendingar af útliti hússins. 

Um er að ræða eign sem er skráð skv. F.M.R. 243,5m2 og þar af er bílskúr 29,1m2.

HÚSIN
Við hönnun hússins er lögð áhersla á að íbúar húsins njóti útsýnis og sólar, meðal annars með stórum gluggum, veröndum og svölum, stórar rennihurðar úr borðstofu, þá er lögð áhersla á að sjónrænt myndi húsið heildasvip og að samræming sé í efnis og litavali. Hús er skráð: 243,5 m2 þar af er bílskúr 29,1. Lýsing anddyri, stofa/ borðstofa, eldhús og fjögur svefnherbergi, fjölskyldurými, gestasnyrting, baðherbergi og snyrting innaf hjónaherbergi, þvottahús, ásamt innbyggðum bílskúr.
Innra skipulag efri hæðar: Anddyri, forstofuherbergi, gestasnyrting, eldhús, borðstofa og stofa, útgengt úr stofu á svalir með rennihurð. Bílskúr. Innra skipulag neðri hæðar: Þrjú svefnherbergi, fjölskyldurými, baðherbergi, snyrting, þvottahús.

Frágangur:
Burðarvirki: Sökklar, plötur, útveggir og berandi veggir hússins eru steinsteyptir og jarnbentir. Lagnir: Rör í rör lagnakerfi. Húsið er upphitað með gólfhita, varmaskiptir en þó ekki stýringar.
Útveggir: Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með litaðri álklæðningu og lítill hluti með harðvið.
Raflagnir: Skiliist tilbúið til innréttinga eða fokhelt skv. skilalýsingu.
Gluggar/hurðir og gler: Gluggar eru Ál/tré að innan og litað ál að utan, glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Bílskúrshurðin er ál, einangruð.
Þak: Þakvirkið er úr timbursperrum, klætt með báraðri málmklæðningu að ofan. Þakið er einangrað með þakull og rakavarið að innan með þolplasti, rafmagnsgrind: Skil samkvæmt skilalýsingu.
Innveggir: Frágangur skv. skilalýsingu.
Svalir: Eru c.a 13 fm. Svalarhandrið eru úr málmprófílum og klædd með öryggisgleri.
Lóð: Grófjöfnuð lóð.

HVERFIÐ
Húsin standa við Kinnargötu 36-42 í Urriðahverfi í Garðabæ. Skammt frá er Urriðaskóli sem er grunn-
og leiksskóli hverfissins. Í næsta nágrenni er golfvöllur, Urriðarvöllur, útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarvatn og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s. verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvikjum. Urriðaholt er umlukið fjölbreyttum opnum náttúrusvæðum og er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun skv. vottunarkerfi BREEAM Communities. Hverfið byggir á hugsjón um að íbúðarbyggð eigi að hámarka lífsgæði fólks sem þar býr í sátt við náttúruna og umhverfið allt. Hverfið nýtur allra þjónustu sem Garðabær hefur uppá að bjóða. Nánar má lesa um hverfið á vefnum http://urridaholt.is/

Upplýsingar um eignina veitir: Ragnar G. Þórðarson lögg. fasteignasali sími: 899-5901 eða ragnar@gardatorg.is
Garðatorg eignamiðlun er staðsett við Lyngás 11, 2.hæð í Garðabæ.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg Eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ
Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ