Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
124 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ OG FLOTT EINBÝLISHÚS*-*FRÁBÆR STAÐSETNING VIÐ GOLFVÖLL*

Stórglæsileg   einbýlishús á tveimur hæðum. Góður sér garður með einkasundlaug og góðri grillaðstöðu bætir verulega við notkunarrýmið. Glæsilegt útsýni. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými.  Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. 3 svefnherbegi og 3 baðherbergi. Möguleiki á þakverönd með frábæru útsýni. Möguleiki á kjallara, þar sem hægt er að hafa 2 svefnherbergi til viðbótar, baðherbergi, sjónvarps og tómstundarrými.

 Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Frábær staðsetning, fallegt umhverfi, örstutt frá hinum vinsæla La Finca golfvelli auk þess sem ótal fleiri golfvellir eru í næsta nágrenni. 
Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði.
 
Um 20-30  mín akstur frá flugvellinum í Alicante og ca. 15 mín akstur á fallega strönd.

Einbýlishúsin eru sérlega vel hönnuð og falleg.
Á neðri hæð er rúmgóð og björt stofa og borðstofa vel tengd eldhúsi með vandaðri og fallegri innréttingu. Úr stofu er útgengi út á góða verönd sem er vel tengd sér garði með einkasundlaug og góðri grillaðstöðu. Einnig er útgengi út í garðinn frá eldhúsi. Rúmgott svefnherbergi með skápum. Baðherbergi.

Á efri hæðinni eru tvö góð svefnherbergi með skápum og tvö baðherbergi. Útgengi út á góðar svalir.
Möguleiki á þakverönd.
Möguleiki á stórum kjallara með ýmsum notkunarmöguleikum, td. tvö aukasvefnherbergi, baðherbergi og sjónvarps/tómstundarrými.
Einnig væri hægt að nýta rými í kjallara fyrir bílageymslu eða vinnuaðstöðu fyrir þá sem vilja vinna heima.
 
Hér er um að ræða rúmgóð og glæsileg einbýlishús á frábærum og fjölskylduvænum stað á frábæru verði. Hús, sem heldur vel utan um stórfjölskylduna, eða gefur svigrúm til að hafa góða aðstöðu fyrir ýmis áhugamál eða vinnu. Góð kaup miðað við stærð, staðsetningu og frágang.
Hægt er að skoða tilbúið sýningarhús, fullbúið fallegum húsgögnum.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Verð frá 352.000 Evrum + kostn. eða ISK 49.200.000,- (gengi 1Evra=140 ISK)
Aukagjald fyrir kjallara: 50.000 Evrur+kostn.
Aukagjald fyrir þakverönd: 15.000 + kostn.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: þakverönd, kjallari, einkasundlaug, sér garður, bílastæði, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.