Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:

Bárugrandi 9, 107 Reykjavík 65.900.000 kr.
110,7 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
Opið hús: 7. febrúar 2023 kl. 17:30 til 18:00
Verið velkomin á opið hús þriðjudaginn 7. febrúar á milli 17:30 og 18:00 - Vinsamlegast hafið samband á fasteignir@procura.is eða í síma 497-7700, til að fá nánari upplýsingar og bóka skoðun.
Bárugrandi 9, 107 Reykjavík er vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá árinu 1988. Eignin er samtals 110,7 fermetrar og þar af er íbúðarrými 86,6 fermetrar og stæði í lokuðu bílskýli 24,1 fermetrar. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Úr alrými er gengið út á góðar svalir sem snúa til suðvesturs.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 110,7 fm, þar af er stæði í bílskýli 24,1 fm
Nánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús með hvítum innréttingum og góðu skápaplássi. Útgengi á góðar suðvestur svalir. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og falleg. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Upphengt salerni, baðkar og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og í kringum baðkar.
Geymsla: 7,0 fm sérgeymsla í sameign.
Lóðin: Húsið stendur á 3890 fm eignarlóð sem er snyrtileg og vel við haldin.
Í sameign er sameiginlegt þvottaherbergi á jarðhæð ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Íbúðin er staðsett á góðum og eftirsóttum stað í Vesturbænum þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu og verslanir. Þá er stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram strandlengjunni.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
- - -
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Kynntu þér fasteignaþjónustu Procura og nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sýna alla lýsingu

- Brunabótamat43.990.000 kr.
- Fasteignamat64.700.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 1. des. 2022
- Flettingar1657
- Skoðendur1412
- 110,7 m²
- Byggt 1988
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Suðvestur Svalir
- Garður
- Þvottahús