Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Steinunn Sigmundsdóttir







































Aðalstræti 50, 450 Patreksfjörður 69.000.000 kr.
114,3 m², atvinnuhúsnæði, 4 herbergi
DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;
SPENNANDI TÆKIFÆRI !Dásamlega fallega Stúkuhúsið á Patreksfirði er komið á sölu - Frábært tækifæri til að eignast fullbúin veitingastað / kaffihús sem hefur heldur betur stimplað sig inn hjá bæði heimamönnum og ferðamönnum.
Þetta fallega hús stendur fyrir neðan götu og skartar einstöku útsýni yfir fjörðinn.
Eigendur endurbyggðu húsið frá A til Ö að undanskyldum útveggjum árið 2012 -2013. Því má segja að húsið sé nánast nýtt. Húsið var endurbyggt eftir öllum reglugerðum varðandi eldvarnir á veitingahúsum.
* Gólfhiti er á aðal hæðinni.
* 3 salerni eru í húsinu.
* Sérvalin antik húsgögn voru keypt inn í allt húsið fyrir opnun.
* Rúmgóður sólpallur er fyrir neðan hús sem er venjulega þétt setin á sumrin enda útsýnið einstakt og óskert út á fjörðinn.
* Við endurbygginguna var hugað vel að loftræstingu í eldhúsinu og því var settur upp veglegur háfur fyrir ofan eldavél í eldhúsinu.
* Vandað var til verka við endursmýði á húsinu.
Stúkuhúsið er með sæti fyrir 50 manns og hefur í gegnum árin fengið frábæra einkunn inn á Tripadvisor og fleiri miðlum.
KAFFIHÚS - MATSÖLUSTAÐUR - VEITINGASTAÐUR / VEITINGAHÚS - VEISLUSALUR - ÚTSÝNI & SAMKOMUSTAÐUR
** Ertu Kokkur og langar þig í eigin rekstur?
** Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að eignast stað þar sem að viðhald er í algjöru lágmarki, allar vatnslagnir, raflagnir og frárennslislagnir voru endurnýjaðar ásamt ytra byrgði hússins, gluggum, þaki, hurðum og sólpalli **
** Það fylgir allt með sem varðar reksturinn á húsinu, ss. Kaffivélin, kökukælirinn ásamt öllum tækjum í eldhúsi **
Hér er allt klárt til að koma á laggirnar vel reknu fyrirtæki, góð viðskiptavild og einstaklega vel staðsett hús hvað varðar útsýni og huggulegheit innandyra.
Allar nánari uppls gefur Steinunn í síma 839-1100 eða á steinunn@dixon.is
Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á steinunn@dixon.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

- Brunabótamat64.950.000 kr.
- Fasteignamat9.410.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 5. des. 2022
- Flettingar572
- Skoðendur498
- 114,3 m²
- Byggt 1925
- 4 herbergi
- 3 baðherbergi
- Sérinngangur

Steinunn Sigmundsdóttir Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
DIXON fasteigna & jarðasala
Aðalstræti 5, 450 Patreksfirði
steinunn@dixon.is
839-1100






































