Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hilmar Gunnlaugsson hrl
Sigurður Magnússon

Bryndís Björt Hilmarsdóttir

















Þiljuvellir 14, 740 Neskaupstaður 52.800.000 kr.
170,1 m², einbýlishús, 6 herbergi
INNI fasteignasala s. 580 7905 - inni@inni.is
Frábært útsýni.
Húsið hefur mikið verið endurnýjað að utan. Skipt var um þakjárn, þakskegg, þakrennur og gluggar eru nýlegir.
Komið er inn í rúmgóða forstofu, á vinstri hönd er gengið inn í bjarta og fallega stofu, L-laga með stórum gluggum. Eldhús er á sömu hæð og að fullu endurgert fyrir tveimur árum og lagt nýtt rafmagn ásamt vatnslögnum.
Við forstofu eru tröppur upp í svefn- og baðherbergi. 3 svefnherbergi eru á efsta palli, eitt stórt hjónaherbergi og tvö minni. Öll herbergin eru með skápum og hefur allt rafmagn verið endurnýjað í þeim á síðasta ári. Í hjónaherbergi er stór gluggi með dásamlegu útsýni. Baðherbergi er með sturtu og lítilli innréttingu. Skipta þarf um vatnslagnir á baðherbergi.
Við forstofu er einnig gengið niður á neðsta pall hússins. Á hægri hönd er mjög rúmgott herbergi með stórum og björtum glugga. Allir veggir voru klæddir og nýtt rafmagn lagt. Inni herbergi er lítil kompa sem nú er notuð sem fataskápur. Á vinstri hönd þegar er gengið er niður frá forstofu er stórt þvottahús og þaðan er innangengt inn á annan gang og herbergi ásamt litlu salerni og köldu bíslagi með útgangi í austur. Þessi herbergi þarfnast viðhalds en skipta þarf um vatnslagnir og lagfæra steypuskemmdir.
Stór og fallegur garður en húsuið stendur á 550 m² lóð. Á lóðinni er 10 m² garðskúr, sem byggður var árið 2019.

- Brunabótamat45.050.000 kr.
- Fasteignamat23.450.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð25. jan. 2023
- Flettingar2270
- Skoðendur1878
- 170,1 m²
- Byggt 1958
- 6 herbergi
- 1 baðherbergi
- 5 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Þvottahús















