Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg, vönduð og vel skipulögð 118,7fm íbúð í nýjasta hluta Smárans í Kópavogi sem er nútímalegt borgarhverfi þaðan sem stutt er í þjónustu verslana og þjónustu s.s. Smáralind, heilsugæslu, skóla og íþróttaaðstöðu ásamt því sem aðgengi að stofnbrautum og þjónustu almennisvagna er afar auðveld. Íbúðir eru búnar nýjustu snjalllausnum sem miða að hagkvæmni og þægindum. Snjallsímastýrður mynddyrasími, hitastýringar og fleira.
Íbúð 602 er 3ja herbergja íbúð á 6. hæð í Silfursmára 4 með stæði í bílakjallara merkt D26. Íbúðin skilast fullbúin með eldhústækjum m.a. innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar í eldhúsi baðherbergjum og svefnherbergjum eru frá Axis ehf. Íbúðin skilast með gólfefnum á öllum gólfflötum íbúðar. Á öllum rýmum er harðparket nema flotrými sem eru flísalögð. Innréttinga týpa er Dökk týpa - útlit 3 sjá betur í skilalýsingu.
Eignin skiptist í anddyri með fataskápum og gestasnyrtingu. Stofa og eldhús í opnu rými þaðan er útgengt út á 30 fm þaksvalir í suðvestur. Hjónaherbergi með fataskápum. Barnaherbergi með fataskápum. Baðherbergi með gólfhita og flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengd salernisskál og vönduð hreinlætistæki. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar. Geymsla í kjallara 7,9 fm að stærð.
Skoðaðu fleiri íbúðir í Silfursmára 4 hér: www.201.is Vísað er til frekari upplýsinga í skilalýsingu Silfursmára 4 sem sjá má á síðunni.
Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það verður sett á.
Ath myndir eru úr sýningaríbúð
Allar nánari upplýsingar gefur:
Óskar Sæmann Axelsson lögg. fasteignasali sími: 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Þórhallur Biering lögg. fasteignasali sími: 896-8232 eða thorhallur@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson lögg. fasteignasali sími: 697-9300 eða svan@miklaborg.is