
.jpg)
































Suðurbraut 14, 220 Hafnarfjörður 52.900.000 kr.
91,9 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir lgf. og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli á frábærum stað miðsvæðis í Hafnarfirði. Skipt var um glugga að stærstum hluta 2015. Stigagangurinn og öll sameign máluð og skipt um teppi 2017. Eignin er miðsvæðis og hjarta og miðbær Hafnarfjarðar í göngufæri. Stutt ganga niður á höfn og í Suðurbæjarlaugina og frábærar gönguleiðir í næsta nágrenni t.d. við Ástjörn.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 91,9 fm og þar af er geymsla 5,4 fm.
Nánari lýsing:
Hol með náttúrstein á gólfi með góðum skáp.
Stofa og borðstofa rúmgóð og björt með parket á gólfi. Útgengt á góðar vestur svalir.
Eldhús með snyrtilegri eldri innréttingu, náttúrustein á gólfi og góðum borðkrók. Bætt við innréttingu og sett tengi fyrir uppþvottavél sem fylgir eigninni. Eldhús er lokað við stofu með léttum vegg og auðvelt að opna aftur eins og upprunalegar teikningar sýna.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og góðum innbyggðum skáp. Nýtt sem barnaherbergi í dag.
Barnaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og innbyggðum skáp. Nýtt sem hjónaherbergi í dag.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með handklæðaofn, glugga og baðkari með sturtu. Innrétting, vaskur og blöndunartæki í vask endurnýjuð 2021.
Þvottahús og geymsla/búr er innaf eldhúsi með glugga, mjög rúmgott og með dúk á gólfi.
Góð sérgeymsla í sameign í kjallara.
Hjóla og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Eignin er miðsvæðis og mjög stutt í bæði skóla og leikskóla sem og alla aðra þjónustu. Íþróttasvæði Hauka í göngufæri.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

- Brunabótamat37.900.000 kr.
- Fasteignamat46.100.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð19. maí. 2023
- Flettingar4935
- Skoðendur4114
- 91,9 m²
- Byggt 1969
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Útsýni
- Þvottahús
.jpg)
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
gudbjorg@trausti.is
899-5949






















