Miðborg fasteignasala Sundagörðum 2, 2.hæð 104 Reykjavík 5334800 - www.midborg.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Þorri Viktorsson

Birkimelur 10A, 107 Reykjavík 15.900.000 kr.

16,1 m², fjölbýlishús, 2 herbergi



Um er að ræða séreignarhluta í kjallara í húseigninni að Birkimel 10A, merktur 00-01 með Fasteignanúmer F2027509. Eignin er skráð tvö íbúðarherbergi í kjallara, rými 00.01, 16,1 fm.

Eigninni fylgir hlutdeild í sameign sem er 1) Stigagangur með sorprennu, 2) Gangar og anddyri, 3) Önnur sameiginleg herbergi í kjallara, 4) Tröppur. Húsið að Birkimel 10, 10A og 10B er fallegt 4ra hæða fjöleignarhús, með inndreginni 5. hæð á þakhæð hússins. Húsið er steinað að utan og almennt séð í góðu ástandi og viðhaldi að sjá. Fágengin lóð og malbikuð bílastæði. Farið var í talsvert mikið utanhússviðhald sem stóð yfir frá maí-nóv. 2022.


Nánari lýsing: Komið er á sameiginlegan teppalagðan stigagang frá anddyri. Gengið er niður í kjallarann og á sameignargang á hægri hönd. Þar eru tvö jafnstór herbergi, samtals 16,1 fm., skráð Íbúðarherbergi skv. fasteignayfirliti og veðbandayfirliti. Herbergin hafa lengst af verið nýtt til létts atvinnurekstrar núverandi eiganda og eru þau með aðgangi að sameiginlegri snyrtingu sem er staðsett rétt til móts við herbergin. Á sameignarganginum eru einnig geymslur nokkurra íbúða, sameiginlegt þvottahús (hver með sína vél), sameiginlegt þurrkherbergi og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með bakútgangi á suðurlóðina.

Annað herbergið er teppalagt og með skáp. Hitt er dúklagt og með skáp. Gluggar eru ágætir og stórt opnanlegt fag á báðum þeirra. Viðhaldi séreignarhlutans hefur ekki verið sinnt á liðnum árum og komið er að því að sparsla og mála herbergin og skipta um gólfefni. Þá þarf einnig að lagfæra smávægilegt múrbrot sem er ófrágengið, eftir að vatnslagnir voru endurnýjaðar. Ath. að ekki er um að ræða samþykkta íbúð.

Hér eru á ferðinni tvö ágæt íbúðarherbergi með sameiginlegri snyrtingu sem og annarri áðurgreindri sameign á afar eftirsóttum stað. Fullyrða má að talsverð eftirspurn er eftir íbúðarherbergjum sem þessum til leigu í Vesturbænum.

Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf., bjorn@midborg.is eða í síma 894-7070.




Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat8.380.000 kr.
  • Fasteignamat16.450.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð19. maí. 2023
  • Flettingar6125
  • Skoðendur5137
  • 16,1 m²
  • Byggt 1958
  • 2 herbergi
  • 2 svefnherbergi
  • Sameiginl. inngangur
  • Engar svalir
  • Laus strax
  • Garður

Björn Þorri Viktorsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala

Miðborg fasteignasala
Sundagörðum 2, 2.hæð 104 Reykjavík
bjorn@midborg.is
533-4850


Lánareiknir: 15.900.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 12.720.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 3.180.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Birkimelur, 107 Reykjavík

Verð:15.900.000 kr. Stærð: 16.1 m² Tegund:Fjölbýli Herbergi: 2
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Miðborg fasteignasala

Sími: 5334800
midborg@midborg.is
www.midborg.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Björn Þorri Viktorsson

Eignin var skráð 19 maí 2023
Síðast breytt 22 maí 2023

Senda á vin eignina Birkimelur, 107 Reykjavík

Verð:0 kr. Stærð: 16.1 m² Tegund:Fjölbýli Herbergi: 2
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Miðborg fasteignasala

Sími: 5334800
midborg@midborg.is
http://www.midborg.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Björn Þorri Viktorsson

Eignin var skráð 19 maí 2023
Síðast breytt 22 maí 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store