









Sælingsdalstunga , 371 Búðardalur 95.000.000 kr.
1208,8 m², lóð, 0 herbergi
Sælingsdalstunga í Dalabyggð er á söguslóðum Laxdælu. Jörðin er talin vera um það bil 1665 hektarar þar af um 21 hektarar tún, hluti þeirra innan skipulagðs sumarhúsasvæðis. Jörðin er vel gróin á láglendi, gott beitiland en hluti með birkikjarri. Efst í fjallendi er lítill gróður. Gott berjaland er á jörðinni og ágætt rjúpnaland. Jörðin á 25% í vatnasvæði Sælingsdalsár og Leysingstaðaár sem falla út í Laxá í Hvammssveit, arður af laxveiði tæplega 500.000 kr á ári. Á jörðinni hefur verið rekið sauðfjárbú. Fjárhús sem þarfnast viðhalds byggð 1984 fyrir 480 fjár með vélgengum kjallara ásamt hlöðu með þremur flatgryfjum byggt árið 1986. Skipulagt hefur verið svæði fyrir sumarhúsabyggð og nokkur hús þegar á svæðinu. Fallegt útsýni m.a. út á Hvammsfjörð. Íbúðarhúsið hefur verið selt frá jörðinni nú nefnt Sælingsdalstunga II. Laugar í Sælingsdal er aðliggjandi jörð, þar var lengi grunnskóli en byggingar nú nýttar til ferðaþjónustu Mjög áhugaverð jörð, fallegt er þarna allt um kring og mikill fjölbreytileiki í landslagi. Jörðin selst án bústofns, véla og án framleiðsluréttar.
Tilvísunarnúmer 10-2578 / 30-4696
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Úlfar Freyr Jóhannsson lögmaður og lögg. fasteignasali sími: 550 3000 ulfar@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

- Brunabótamat65.100.000 kr.
- Fasteignamat18.840.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð18. júl. 2023
- Flettingar1449
- Skoðendur1279
- 1208,8 m²
- Byggt 1984
- 0 herbergi








