Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson
Vista
lóð

Leirubakki Fjallaland

851 Hella

Tilboð

Fasteignanúmer

F0000338

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu glæsilegar sumarhúsalóðir í Fjallalandi við Leirubakka. Aðeins 102 km frá Reykjavík á malbikuðum vegi. Lóðirnar sem allar eru eignarlóðir, eru í kjarri vöxnu hrauni við Ytri-Rangá, eina fallegustu bergvatnsá landsins. Mikil og fögur fjallasýn er af svæðinu, þar sem vel sést til Búrfells, Heklu, Bjólfells, Tindfjalla, Eyjafjallajökuls og Þríhyrnings. Þá eru útivistarmöguleikar á þessum slóðum ótakmarkaðir allan ársins hring, hvort heldur er á láglendi eða á hálendinu, sem er örskammt undan. Náttúruperlur á borð við Réttarnes, Skarfanes, Tröllkonuhlaup, Landmannalaugar, Hrafntinnusker og Veiðivötn eru örskammt undan og nær allir helstu ferðamannastaðir á Suðurlandi eru í innan við einnar klukkustundar akstur frá Fjallalandi.  Fjallaland er þekkt fyrir mikla veðursæld og heit sumur, enda voru fyrr á öldum miklir og gróskumiklir birkiskógar á þessum slóðum, sem nú eru óðum að vaxa upp aftur.  Í Fjallalandi eru lóðirnar seldar með vegi, rafmagni og köldu vatni að lóðarmörkum, og hitaveita stendur einnig til boða. Þá er heima á Leirubakka boðið upp á margvíslega þjónustu við svæðið, þar er til dæmis hótel og veitingasala, tjaldstæði, veislusalir, og Heklusýning í nýju Heklusetri. Þá er hafinn undirbúningur að golfvelli, hestaleiga er á staðnum, boðið verður upp á leikjanámskeið fyrir börn og unglinga, menningargöngur og kvöldvökur og margt fleira. Allar lóðirnar í Fjallalandi eru á fallegu mosa- og kjarrivöxnu hrauni. Mikið útsýni er frá þeim öllum. Lóðirnar eru allar stórar, eða frá 5 þúsund fermetrum upp í 12 þúsund fermetra. Mjög rúmt er um lóðirnar og svæðið skipulagt með það í huga að opin svæði og gönguleiðir séu greiðar. Nánar upplýsingar á á www.fjallaland.is 
Tilvísunarnúmer 13-0940

Sjá hér,  Höfuðból - kort  
   og 
Höfuðból Leirubakka - sölukynning
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang: 
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig:  fasteignamidstodin.is / jardir.is fasteignir.is mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali  gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is         
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600  maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur
Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur