Lýsing
Miklaborg kynnir: Skemmtileg 3ja herbergja risíbúð á 5. hæð við Holtsgötu. Íbúðin er skráð 32,9 fm en er um 50 fm að gólffleti þar sem hún er að hluta til undir súð. Íbúðin er í góðu standi og hefur að hluta til verið endurnýjuð. Íbúðin skiptist í stofu, tvö lokuð svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Íbúðin er ósamþykkt. Íbúðin er laus strax.
Íbúðin er eina íbúðin á 5. hæð. Komið anddyri og ágæta stofu með þakgluggum. Tvö rúmgóð svefnherbergi með þakgluggum. Eldhús með ágætri innréttingu og þakglugga, ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél fylgja með. Baðherbergi með þakglugga, baðkar, lítilli innrétting með vaski og upphengt salerni. Aðastaða fyrir þvottavél sem fylgir með sem er með innbyggðum þurrkara. Nýlegt vatnsþolið Quick step parket er á íbúðinni. Undir súð í öllum rýmum íbúðarinnar er mjög gott geymslupláss.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús sem íbúðin hefur aðgengi að.
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingu er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Snyrtileg íbúð í 101 á hentugu verði.
Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is