Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 63,9fm og eru allir fermetrar innan íbúðar.
Fasteignamat íbúðar fyrir árið 2025 verður 41.800.000 kr.
Nánari lýsing
Anddyri með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa björt með stórum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt út á sólríkar svalir með fallegu útsýni.
Eldhús er opið við stofu með fallegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og gufugleypir, ofn og flísar á gólfi.
Svefnherbergi er með góðu skápaplássi, skápar sem ná alveg upp í loft og parket er á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, handklæðaofni, upphengdu salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar í hólf og gólf.
Geymsla með glugga er innan íbúðar.
Vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.