Lýsing
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kynnum til sölu nýjar og einstaklega vandaðar íbúðir í Hlíðarhorni. Um er að ræða 33 íbúðir við Valshlíð 3 í Reykjavík á suðvesturhorni byggingarreits. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar í janúar 2025.
Íbúð 508 er 77,5 fm þar af 6,1 fm geymsla. Um er að ræða stórglæsilega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á efstu hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með svölum, svefnherbergi og baðherbergi
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um innri garð. Byggingin er miðsvæðis í Reykjavík í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Stutt er því í alla helstu þjónustu, samgöngur, skóla, íþróttaaðstöðu, iðandi mannlíf og stóra vinnustaði.
Í Hlíðarhorni eru 195 íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Allar íbúðir eru með svölum, þaksvölum eða sérafnotareitum á jarðhæð og hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Allt húsið er klætt að utan með álklæðningum með gluggum úr ál/tré og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar.
Allar innréttingar íbúða eru vandaðar frá Nobilia/GKS og eldhústæki eru af tegundunum Siemens og Witt. Íbúðir skilast með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og blástursofni, blöndunartækjum frá ítalska framleiðandanum Mariner, Berry Alloc vinylparketi og flísum frá Álfaborg. Innréttingarþema hverrar íbúðar er fyrirfram ákveðið. Íbúðir eru allar full-loftræstar.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Nánari lýsing íbúðar skv teikningu:
Anddyri: Rúmgóðir fataskápar. Anddyri opnast inn í alrými.
Eldhús: Mattar satín-hvítar innréttingar og eyja frá Nobilia og ljós quartz-steinn á borðum og milli skápa. Bjart og hlýlegt í opnu alrými.
Stofa/borðstofa: Rúmgott alrými með útgengi á suðursvalir.
Svefnherbergi: Gott hjónaherbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Með mattri satín-hvítri innréttingu og speglaskáp, “walk-in” sturtu með gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum skv þemalýsingu.
Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.
Hönnunarþema íbúðar 508 : Mjöll 3
Athygli kaupanda eru vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.
FyrirvararÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.