Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
svg

4832

svg

3584  Skoðendur

svg

Skráð  7. mar. 2025

hæð

Aðalstræti 16 eh

600 Akureyri

92.900.000 kr.

535.755 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2213492

Fasteignamat

74.150.000 kr.

Brunabótamat

72.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1900
svg
173,4 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

AÐALSTRÆTI 16  EFRI HÆР   
Falleg og hlýleg íbúð á efri hæð ásamt góðu risrými í einu af virðulegustu húsum bæjarins með fallegu útsýni. Samtals er eignin 173,4 fm. Hér er um að ræða einstakt hús í hjarta Innbæjarins sem stendur á gatnamótum tveggja elstu gatna bæjarins Hafnarstrætis og Aðalstrætis.  


Gengið er inn í íbúðina af verönd á norð-austur horni hússins.  Þar er komið inn í flísalagða forstofu.  Fallegur stigi er upp á hæðina.  Lítið þvottahús er á stigapalli á hæðinni.  Aðalhæð íbúðarinnar skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, sjónvarpstofu og eldhús, borðstofu og hol í einu opnu rými. Upprunalegar gólffjalir eru á hæðinni að mestu og hafa þær verið pússaðar upp.  Upprunalegar loftfjalir eru í loftum og á veggjum eru brjóstlistar og veggfóður á hluta.  Á eldhúsi eru nýrri  gólffjalir og á baðherbergi er dúkur.  Á baðherbergi er baðkar og eru öll tæki á baði í gömlum stíl.  Í eldhúsi er nýleg innrétting og úr borðstofu er farið út á svalir til suðvesturs.

Úr holi er stigi upp í ris sem er skráð 48,7fm en nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri undir súð.  Risið er að mestu eitt stórt opið rými  en þar er þó stúkað af eitt svefnherbergi og lítið salerni. Á risinu væri auðvelt að fjölga svefnherbergjum.  Gólffjalir eru þar á gólfum og bitarnir í loftinu sjást sem setur skemmtilegan svip á risið.  Allur frágangur er til fyrirmyndar og góð halogen lýsing er í risinu.  Risið skiptist annars í eitt svefnherbergi, salerni, dagstofu, lesstofu og skrifstofu- og gestarými/svefnpláss.

Hátt til lofts og vítt til veggja, og íbúðin er björt þar sem gluggar eru bæði stórir og margir.

Með eigninni  fylgir einnig 50% hlutur í Aðalstræti 18 fnr. 233-7892, einbýlishúsalóð sem hefur verið notuð sem bílastæði fyrir eigendur Aðalstrætis 16.

Lóðin er stór, skráð 2.217fm og er eignarlóð í sameign með íbúð á neðri hæð, og auk þess að vera flöt í kringum húsið  nær hún töluvert  upp í brekkuna.

Eignin var endurnýjuð frá grunni fyrir ca. 30 árum síðan og var mjög haganlega að allri vinnu staðið til að viðhalda upprunalegu útliti hússins.

- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf. 

Annað:
- Húsið var endurgert og hófst sú vinna árið 1992.
- Skipt hefur verið um klæðningu að utan, alla glugga, járn á þaki, allar lagnir og ofna í húsinu.
- Útihurðin er í gömlum stíl en innihurðir og svalahurð eru upprunalegar.
- Hús málað 2022/2023
- Sameiginleg geymsla á jarðhæð.
- Húsið er friðlýst að utan.
- Göngufæri við miðbæinn.

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is


 


 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. apr. 2017
33.000.000 kr.
38.000.000 kr.
173.4 m²
219.146 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone