Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
sumarhús

Birkiland 14

660 Mývatn

125.000.000 kr.

349.065 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2324735

Fasteignamat

104.950.000 kr.

Brunabótamat

182.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2011
svg
358,1 m²
svg
7 herb.
svg
5 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu glæsilegt 320 fm einbýlishús í Birkilandi 14, í Mývatnssveit skammt frá Grjótagjá. Húsið er á tveimur hæðum í skipulagðri frístundabyggð með 38 fm gestahúsi og útsýnisturn með einstöku útsýni og mikilli nátturufegurð hvert sem litið er. Stutt er í allar helstu nátturuperlur í Mývatnssveit, svo sem Jarðböðin, Hverfjall, Hverir og Dimmuborgir. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða thorbirna@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ SJÁ 3D AF EFRI HÆÐ

SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ SJÁ 3D AF NEÐRI HÆÐ

SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ SJÁ SÖLUYFIRLIT


Húsið er alls skráð 320.2 fm. Þar af er gestahús skráð 37.9 fm.

Húsið skipar fjögur svefnherbergi, möguleiki er á að færa þvottahúsið til og gera tvö herbergi til viðbótar til að þau verði sex herbergin. Fimm baðherbergi eru í aðalhúsinu, eitt þeirra er með tveimur sturtum og snyrtingu með góðri aðstöðu. Fjögur alrými sem tengjast með á hvorri hæð, síðan er mjög rúmgott alrými á neðri hæðinni með beinni teingingu út í garð. Þrjá stórar tvöfaldar hurðir út á lóð eða verönd, fyrir utan svefnherbergi sem einnig er með opið út á verönd. Ljósleiðari og þráðlaust net. Gólfhiti í öllum rýmum. Stimpluð stéttin að húsi er með snjóbræðslu. Húsið er hannað með tilliti til að lágmarka viðhaldið. Innfelld lýsing. Viðhaldsfrí utanhússklæðnig frá Canexel. Ál-tré gluggar frá Trésmiðjunni Berki. Einstök eign í mögnuðu umhverfi. 

Helstu atriði:
●       Stærð: Aðalhús 282 fm, gestahús 38 fm. Samtals 320 fm.
●       Svefnherbergi: Fjögur rúmgóð svefnherbergi í aðalhúsi. Möguleiki á að bæta við tveimur herbergjum (sex alls) með því að færa þvottahús.
●       Baðherbergi: Fimm baðherbergi í aðalhúsi (eitt með tveimur sturtum) auk baðherbergis í gestahúsi.
●       Alrými: Björt og opin rými á báðum hæðum sem bjóða upp á mikla möguleika. Stórt alrými á neðri hæð með beinum aðgangi út í garð.
●       Útsýni og útivist: Þrjár stórar tvöfaldar hurðir opnast út á lóð eða verönd. Einnig útgengt úr einu svefnherbergi. Einstakt útsýni úr turni.
●       Þægindi: Gólfhiti alls staðar, ljósleiðari, þráðlaust net og snjóbræðsla í stétt.
●       Lítið viðhald: Hannað með lágmarks viðhald í huga. Viðhaldslítil Canexel klæðning og ál-tré gluggar frá Berki.
●       Aukabúnaður: Heitur pottur (hitaveitu), útisauna (tunna), hlaðið kolagrill úr hrauni og stór steypt verönd.

Anddyri: Gengið er inn á aðalhæð, í anddyri með fatahengi og skápum. Flísar á gólfi.
Gestasnyrting: Er í anddyri til vinstri og við hlið hennar er geymsla.
Eldhús: Opið eldhús á aðalhæð, ljós viðar innrétting frá Brúnás, eyja, gashelluborð, innbyggð AEG uppþvottavél.
Stofa: Er á aðalhæð, tekin niður 16 fm, turn upp af arinstofu 16 fm, gott útsýni yfir sveitina.
Sjónvarpsherbergi: Rými milli anddyris og hjónaherbergis.
Hjónaherbergi: Bjart og fallegt hjónaherbergi. Er um 40 fm með hurð út á svalir til austurs. 7X50 cm fataskrápar frá gólfi til lofts. Litlir gluggar til austurs. Harðparket á gólfi
Baðherbergi: Er inn af hjónaherbergi með baðkari og sturtu. Flísar á gólfi og veggjum
Herbergi 2: Innaf borðstofu er nýtt sem skrifstofa, flísar á gólfi, gluggar til austurs og suðurs.
Herbergi 3: Er á neðri hæð. 15 fm, með einka snyrtingu. Flísar á gólfi. 
Herbergi 4: Er á neðri hæð. 12 fm, með einka snyrtingu. Flísar á gólfi.
Baðhús:  Er á neðri hæð, flísar á gólfi og veggjum, salerni og tvöföld sturta, gott búningsrými.
Miðrými: Er á jarðhæð, nýtist til samveru, líkhamsræktar og þess háttar.
Geymsla: Á jarðhæð um 40 fm.
Pallur: Steinsteyptur, tveggja metra breiður, þrír metrar í suður með útskoti fyrir borð, hellulögð stétt á jarðhæð sunnan við hús, með tréstiga uppá pall við gestahús.
Útigrill: Kolagrill, hlaðið úr hrauni á stétt sunnan við hús á jarðhæð
Sauna: Tunna frá Sauna.is. 150 cm löng.  Steinlögð gönguleið frá stétt.
Heitapottur: Hitaveitu úr tré.
Gestahús: Er á tveimur hæðumFlísar á gólfi, opið rými  á neðri hæð, með eldhúsi og innbyggðum kæliskáp, snyrting með sturtu.  Brattur stigi  upp, plastparket á gólfi, 2X80cm rúm fylgir og skápar undir súð.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða thorbirna@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík