Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
203,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 21. júlí 2025 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Laxatunga 185, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd mánudaginn 21. júlí 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 21. júlí frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  **
  
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt 203,4 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 185 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 203,4 m2, þar af raðhús 166,5 m2 og bílskúr 36,9 m2 að auki er ca. 12-14 m2 herbergi fyrir ofan bílskúr sem er ekki í heildar fermetratölu hússins. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, vinnuherbergi, geymslu, bílskúr og herbergi fyrir ofan bílskúr. Gott skipulag. Fallegar innréttingar og gólfefni.
Hellulagt bílaplan með hita og mjög stór timburverönd í suðvesturátt með heitum potti. Eignin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbænum. Stutt er í leikskóla, almenningssamgöngur, vinsælar gönguleiðir og útivistarsvæði. Mikil lofthæð með innbyggðri lýsingu. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi. Inn af forstofu er fataherbergi með fataskáp.
Gestasnyrting er með parketi á gólfi, innréttingu með skolvask og vegghengdu salerni. Úr gestasnyrtingu er gengið inn í bílskúr
Vinnuherbergi er með parketi á gólfi og rennihurð.
Eldhús er rúmgott með L-laga innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggður tvöfaldur ísskápur, niðurfelldur vaskur, tvær uppþvottavélar og tvö helluborð. Gott skápapláss, granít á borðum og parket á gólfi
Stofa/Borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðvesturátt með heitum potti.
Baðherbergi er með flísum, innréttingu með skolvask, vegghengdu salerni, baðkari og 'walk-in' sturtu. 
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskápum
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskápum
Herbergi nr. 4 er með parketi á gólfi og þakglugga. Er í risi fyrir ofan bílskúr. Er ekki hluti af heildar fermetratölunni.
Þvottaherbergi er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Mikið skápapláss.
Bílskúr er með flísum á gólfi og innréttingu. Inn af bílskúr er stigi upp til að komast að svefnherbergi nr. 4. Úr bílskúr er gengið inn á gestasnyrtingu og þaðan inn í hús. 

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er 134.900.000 kr.

Verð kr. 139.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. sep. 2024
122.850.000 kr.
66.230.000 kr.
10101 m²
6.557 kr.
4. feb. 2015
122.850.000 kr.
5.650.000 kr.
1 m²
5.650.000 kr.
23. júl. 2019
67.100.000 kr.
76.000.000 kr.
203.4 m²
373.648 kr.
8. jan. 2019
67.100.000 kr.
79.900.000 kr.
203.4 m²
392.822 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ