Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

156

svg

131  Skoðendur

svg

Skráð  18. júl. 2025

fjölbýlishús

Álfaborgir 9

112 Reykjavík

73.900.000 kr.

766.598 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2234499

Fasteignamat

64.550.000 kr.

Brunabótamat

47.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
96,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. júlí 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Álfaborgir 9, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 04. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 24. júlí 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Prima fasteignasala kynnir í sölu bjarta 96,4 fm endaíbúð með sérinngangi á 3.hæð (efstu hæð) i við Álfaborgir 9, Grafarvogi. 

Eignin verður sýnd á opnu húsi á fimmtudaginn 24 júlí kl 17:30-18:00


Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð.
Eldhús með borðkrók. Nýlegur vaskur, blöndunartæki, ofn og helluborð (2023)
Hol / gangur með rými fyrir vinnuaðstöðu.
Svefnherbergi (I) rúmgott með fataskáp.
Hjónaherbergi (II) með skápum.
Svefnherbergi. (III) með fataskáp.
Stofa björt og opin með útgengi á svalir sem snúa í suður. Kalt ker er á svölum.
Baðherbergi er flísalagt að hluta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla á jarðhæð.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.
Sérmerkt bílastæði fyrir framan hús.
Garður er sameiginlegur með leiktækjum.
Húsfélag er starfandi í húsinu.
Heimilt að vera með gæludýr.

Húsið var viðgert 2018 þar sem þak var yfirfarið, skipt um rennur og frárennsli, skipt um glugga á suðurhlið hússins og svalahurðir, þakrennur á suðurhlið, húsið málað, svalagólf sílanborin og máluð, viðgerðir á svalahandriðum og útihurðir lakkaðar. 

Um er að ræða góða eign á eftirsóttum og barnvænum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir.

Nánari upplýsingar veitir.
Óskar Már Alfreðsson löggiltur fasteignasali / s.6158200 / oskar@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. nóv. 2024
63.650.000 kr.
72.900.000 kr.
10304 m²
7.075 kr.
14. ágú. 2020
41.650.000 kr.
47.300.000 kr.
96.4 m²
490.664 kr.
17. jan. 2018
34.500.000 kr.
39.900.000 kr.
96.4 m²
413.900 kr.
30. mar. 2010
20.000.000 kr.
20.000.000 kr.
96.4 m²
207.469 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6