Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
einbýlishús

Lóugata 24

270 Mosfellsbær

169.000.000 kr.

675.730 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2525384

Fasteignamat

21.300.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
250,1 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 
    
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt - Glæsilegt 250,1 m2, einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Lóugötu 24 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 250,1 m2, þar af einbýli 202,2 m2 og bílskúr 47,9 m2. Eignin skiptist í anddyri með baðherbergi, sambyggða stofu, borðstofu og eldhús, sjónvarpshol, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi, baðherbergi og þvotthús. Úr anddyri er innangengt í bílskúr/geymslu. Frábær staðsetning innarlega í botnlanga. Stutt í Helgafellsskóla sem er bæði grunn- og leikskóli. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda svo til tilbúin til innréttinga en búið er að full mála veggi, setja hljóðdúk í loft með lýsingu og ganga frá rafmagni rafmagn fullfrágengið með free@home hússtjórnarkerfi og fullfrágengið loftskiptikerfi frá Systemair. Gólf eru rykbundin, en bílskúrsgólf er frágengið með epoxy gólefni. Bílaplan og gönguleið fyrir framan hús er hellulögð með snjóbræðslu að hluta. Hellulagt svæði er fyrir framan útgang úr stofu. Lóð er að öðru leiti þökulögð og afgirt með tveggja banda timburgirðingu. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. 


Sjá nánari skilalýsingu hér fyrir neðan:
Frágangur utanhúss
Burðvirki: Allt burðarvirki hússins, þ.e.a.s. sökklar, botnplata, berandi veggir og þak eru úr járnbentri steinsteypu. Einangrað er undir botnplötu og utan á sökkla með 100mm plasteinangrun.
Útveggir eru einangraðir að utan með 100mm steinullareinangrun og klæddir með loftræstri útveggjaklæðningu. Húsið er almennt klætt með standandi álpanelklæðningu á álundirkerfi.
Þak er viðsnúið: Þakplata er steypt með amk 2,5% vatnshalla. Ofan á henni er tvöfaldur ásoðinn þakpappi og 2x100mm XPS plasteinangrun. Efst liggur möl sem heldur einangrun niðri. Þök og þakbrúnir verða fullfrágengnar ásamt niðurföllum. 
Gluggar Í húsinu eru álklæddir timburgluggar gluggar. Gluggar eru í dökkgráum lit, RAL 7016, anthrazitgrau. Ál-trégluggar er settir í eftir á. Inngangshurðar eru úr timbri. Allt gler er tvöfalt einangrunarkler, K-gler. 
Lóð er frágengin að mestu. Á lóð er hellulagt bílastæði og gönguleið að húsi, með snjóbræðslu. Hellulagðar verandir eru við útganga úr stofu og borðstofu. Lóð er að öðru leiti þökulögð, en þó ófrágengin á lóðarmörkum við Lóugötu 24. Sportunnuskýli fyrir 3 sorptunnur eru við bílaplan. 

Frágangur innanhúss:
Húsinu er skilað í núverandi ástandi
Gólf: Gólf eru steypt, flotuð og rykbundin en bílskúrsgólf er frágengið með epoxy gólfefni. Kaupendum er bent á að leita til fagmanna um útfærslu og fyrirkomulag við frágang gólfefna íbúðar. 
Veggir Steyptir veggir eru spartlaðir og grunnaðir í hvítum lit. Innveggir eru gipsklæddir með tvöföldu gipsi, sparstlaðir og grunnaðir í hvítum lit. Veggir í baðherbergjum eru ófrágengnir að hluta, þar sem gert er ráð fyrir membrun og flísalögn. 
Loft: Hljóðdúkur er frágenginn í loftum í stofu, eldhúsi, sjónvarspsholi og svefnherbergjum. Önnur loft eru grunnuð og máluð.
Rafkerfi: Inntak og rafmagnstafla uppsett í bílskúr. Raflagnir eru frágengnar með Free@home hússtjórnarkerfi. Innfelld ljós er í loftum í stofu, eldhús, gangi og herbergjum. Gert er ráð fyrir lögn vegna hleðslustöðvar fyrir rafbíl. Útiljós eru uppsett og ljósastaurar við innkeyrslu
Lagnir: Inntak hita og neysluvatns er frágengið, en án hitastýringar. Gólfhitakerfi er í húsinu frágengið með hitastýringu. Neysluvatn lagt í gólf og veggi skv. teikningum. Lagnaleið fyrir heitan pott er út á verönd. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi. Hámarkshiti á heitu vatni eru 60°C. Stofninntak neysluvatnslagna er tengt og frágengið. Neysluvatnskerfi er með forhitara. Loftræstikerfi Loftskiptikerfi í íbúðarrými verður uppsett og frágengið. 
Eldhús: Lagnaleiðir fyrir eldavél, ofn, viftu, ísskáp og uppþvottavél eru lagðar í samræmi við innréttingateikningu. 
Baðherbergi: Baðherbergi 1 - Baðherbergisgólf er flotað og tilbúið undir membrun. Loft eru sandspörstluð og grunnuð. Tveir baðherbergisveggir eru sandsparstlaðir og grunnaðir, en tveir veggir eru tilbúnir undir membrun og flísalögn. Baðherbergi 2 (inn af forstofu) - Gólf er flotað og tilbúið undir membrun og flísalögn. Loft eru sandspörstluð og grunnuð. Veggir eru sandsparstlaðir og grunnaðir.  
Þvottahús: Gólf er flotað og tilbúið undir membrun. Loft og veggir eru sandsparstlaðir og grunnaðir. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, skv. byggingarnefndarteikningu. Gert er ráð fyrir þurrkara með rakaþétti. 
Bílskúr: Bílskúrsgólf er frágengið með epoxy efni. Bílskúrshurð er uppsett, með rafdrifinni hurðaopnun. Útgangshurð er frágengin.

Annað:
Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf sem er fjölskyldufyrirtæki með yfir 40 ára reynslu af byggingu íbúðarhúsa. Húsið er afhent og skráð á byggingarstig 2 og matsstigi 4, fokhelt bygging. Meistaraskipti: Kaupandi skal sjá um að fá nýja meistara að verkinu frá og með afhendingardegi. Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, útlits- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri. Gera má ráð fyrir því að kaupandi þurfi að endurmála þegar byggingarefni hefur náð stöðugu ástandi. Kaupandi og seljandi fara yfir eignina í sameiningu við skil og sannreyna ástand hennar. Ef gallar eða vanefndir koma í ljós skal seljandi lagfæra við fyrsta tækifæri. Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofu seljanda og geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).


Hönnuðir og byggingaraðilar
Byggingaraðili: Byggingafélagið Bakki ehf, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ.
Arkitekt: Garðar Snæbjörnsson, GS-teiknistofa ehf.
Verkfræðihönnun: Burðarþol og lagnahönnun: Ferill ehf, Mörkin 1, 108 Reykjavík.
Raflagnahönnun: Lúmex ehf, Skipholt 37, 105 Reykjavík. 9.

Verð kr. 169.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ