Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Kári Sighvatsson
Vista
svg

3362

svg

2657  Skoðendur

svg

Skráð  25. nóv. 2025

fjölbýlishús

Garðatorg 2a

210 Garðabær

109.900.000 kr.

1.096.806 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2353654

Fasteignamat

87.950.000 kr.

Brunabótamat

61.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
100,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í nýlegu, vel staðsettu húsi miðsvæðis, við Garðatorg í Garðabænum. Sjávarútsýni. Stæði í bílageymslu. 

Það verður ekki haldið opið hús. Áhugasamir bóki skoðun hjá Kára í s. 8998815 eða kari@eignamidlun.is 


*** Smellið hér til að sækja söluyfirlit ***

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 404 við Garðatorg 2a, 210 Garðabæ, F2353654. 3ja herbergja íbúð á 4. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 100,2 fm, þar af er íbúðarrými 93 fm og sérgeymsla er 7,2 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, opið eldhús og stofu í góðu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús. Sérgeymsla í kjallara. Íbúðin er nýleg og öll hin snyrtilegasta að innan. Fallegar dökkar innréttingar frá GKS og vandað viðarparket á gólfum. Frábært útsýni er úr íbúðinni. Svalir snúa í suðaustur (7,6 fm), mögulegt að setja svalalokun. Stæði í bílageymslu (E14) fylgir íbúðinni. Húsvörður er í húsinu. Berglind Berndsen innanhússarkitekt sá um innanhússhönnun. 

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri með góðum fataskápum, parket á gólfi. 
Eldhús er opið með stórri innréttingu með veggfastri eldhúseyju. Vönduð eldhústæki, Siemens ofn og helluborð. Innbyggð AEG uppþvottavél. Steinn á borðum. Parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð, opin og björt með góðri tengingu við eldhús í opnu alrými með glugga í þrjár áttir. Parket á gólfi. Útgengt er á suðaustur svalir úr stofu. Möguleiki er á svalalokun. 
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2 er með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu með handlaug. Upphengt salerni, walk-in sturta. Handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf.
Sérþvottahús inn af anddyri. Flísar á gólfi. 
Hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð hússins.
Geymsla íbúðar (0016) er í kjallara hússins.
Bílastæði í bílakjallara (E14) fylgir íbúðinni. Gestastæði eru í opinni bílageymslu og á torgi Garðatorgs 7b. 

Fasteignamat 2026 = 95.250.000 kr.

Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma 899-8815 eða á kari@eignamidlun.is

Lóðarleigusamningur er frá 24. maí 2013 til 50 ára. Garðatorg 2a er 24 íbúða hús á 6 hæðum auk kjallara með geymslum og bílageymslu. Byggingarár er 2016. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan með 125 mm steinull og klætt að utan með viðhaldsléttri klæðningu. Þak er einangrað ofan á plötu og klætt með þakdúk sem er dýflaður ofan í þakplötuna. Gluggar eru álklæddir trégluggar. 

Hiti er sameiginlegur og reiknaður samkvæmt hlutfallstölu (1,73%). Eignin er kynt með ofnakerfi í herbergjum og alrými og handklæðaofni á baðherbergi. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kári Sighvatsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kári Sighvatsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. apr. 2017
43.150.000 kr.
53.900.000 kr.
100.2 m²
537.924 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kári Sighvatsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík