Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

1245

svg

954  Skoðendur

svg

Skráð  3. des. 2025

hæð

Brattahlíð 40

270 Mosfellsbær

92.900.000 kr.

833.932 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2505712

Fasteignamat

78.200.000 kr.

Brunabótamat

57.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
111,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. desember 2025 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Brattahlíð 40, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd sunnudaginn 7. desember 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Brattahlíð 40, 270 Mosfellsbær íbúð merkt 102

Stórglæsileg 4herb íbúð á jarðhæð með tveimur bílastæðum. Eignin telur andyri, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi ásamt þvottaaðstöðu, geymslu og sameiginlegri vagna/hjólageymslu. 
Húsið er allt hið vandaðasta, staðsteypt og steinað að utan. Þak með soðnum pappa, einangrunn og Firerston þakdúk og möl. Milliloft steypt og milliveggir hlaðnir. 
Hurðar og gluggar eru ál. Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar. Vönduðum heimilis og hreinlætistæki. Vinilparket á gólfi.

Nánari lýsing 
Andyri er flísalagt með fataskáp.
Eldhús með vönduðum sérsmíðuðum eikarinnréttingum frá Brúnás. Skápar  og skúffur eru með mjúklokun. Efri skápar ná upp í loft. Blöndunartæki frá Grohe. Eldhústæki eru frá Simens þ.a.s  bakarofn, háfur og spanhelluborð
Stofa og borðstofa er í alrými með eldhúsi og er útgengt út á 35fm pall ( búið að leggja lagnir fyrir heitum potti)
Hjónaherbergi rúmgott með fataskápum.
Herbergin ll með fataskáp.
Herbergi lll einnig með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, ljósakappa með ledlýsingu og spegli. Hreinlætis og blöndunartækjum frá Grohe,  veggsalerni og sturtu. Góð sérsmíðuð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Aukin lofthæð er í íbúðinni
Forhitað vatn sem þýðir að kísill er ekki að setjast á hreinlætistæki og gler í sturtu.
Geymsla er innan íbúðrar ca 6m2
Vagna og hjólageymsla á sömu hæð 
Bílastæði  eru malbikuð og máluð.

Innréttingar eru sérsmíðaðar eikarinnréttingar frá Brúnás.
Innihurðar eru eikarhurðar frá Parka.
Heimilistæki  eru vönduð tæki frá Simens.
Hreinlætistæki eru öll Grohe
Gluggar eru úr áli með hljóðeinangruðu gleri.
Gólfefni er vinilparket fyrir utan forstofu og baðherbergi þar eru flísar.
Stutt er í skóla, verslanir, Lágafellssundlaugina, frábærar gönguleiðir, golfvöllinn ofl

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Prima fasteignasala ehf
Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. mar. 2020
50.400.000 kr.
57.900.000 kr.
111.4 m²
519.749 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6