Skilmálar um notkun á vefkökum

Skilmálar þessir eiga við um notkun á vefkökum á fasteignavef Félags Fasteignasala, fasteignir.visir.is og öllum undirlénum sem tilheyra vefnum.

Um vefkökur

Vefkökur eru litlar textaskrár sem vistast á tölvu eða snjalltæki sem þú notar til að heimsækja vefsvæði í fyrsta sinn. Tilgangur vefkökunnar er að gera vefsvæðinu kleift að muna eftir þér og hvernig þú notar vefsíðuna þegar þú heimsækir síðuna aftur. Vefkökur vista ekki persónuupplýsingar á borð við nöfn, netföng, símanúmer eða kennitölur.

Hvernig notum við vefkökur?

Vefkökur gera notandanum mögulegt að nota þá virkni sem vefsíðan býður upp á. Vefkökur eru einnig notaðar til að mæla og bæta virkni vefsíðunnar og auka þannig þjónustu við notendur. Til þess nýtum við þjónustu fyrirtækja á borð við Google Analytics til vefmælinga og gæðaeftirlits. Upplýsingar sem við notum í þessum tilgangi eru t.d. tegund stýrikerfis, vafra og skjástærð notenda. Einnig mælum við fjölda og lengd heimsókna, aðgerðir notenda á síðu og leitarorð sem notuð eru. Þessar upplýsingar notum við til að bæta upplifun notenda og við þróun á lendingarsíðum okkar.

Markaðsskilaboð

Við nýtum vefkökur frá þriðja aðila til að deila upplýsingum með samstarfsaðilum sem eru notaðar til að auglýsa með, m.a. til að fá upplýsingar um hvaðan þú komst inn á vefsíðuna. Við nýtum einnig upplýsingarnar til að greina hvaða síður á vefsvæðinu þú hefur áhuga á. Þessar upplýsingar má nota til að birta þér auglýsingar sem við metum svo að þú hafir áhuga á að sjá og til að sníða þau skilaboð sem við birtum þér. Við deilum ekki upplýsingum sem eru persónugreinanleg með þessum aðilum eða vefsíðum þriðja aðila, sem birta auglýsingar á okkar vegum.

Fyrsta og þriðja aðila vefkökur

Vefkökur frá fyrsta aðila (e. first party cookies) eiga uppruna á sama léni og vefsíðan sem þú ert að heimsækja. Í þessu tilfelli er það fasteignir.visir.is og undirsíður vefsvæðisins. Vefkökur þriðja aðila (e. third party cookies) eru vefkökur sem koma frá öðru léni en vefsíðunni sem þú ert að heimsækja. Dæmi um þriðja aðila eru Facebook og YouTube. Tengingar þessara fyrirtækja inn á vefsvæði okkar geta gert viðkomandi fyrirtækjum kleift að koma vefköku fyrir í tölvunni þinni eða snjalltæki. Við höfum ekki stjórn á því hvernig þessi fyrirtæki nota vefkökur, en við hvetjum þig til að kynna þér hvernig þau nota vefkökur og hvernig þú getur haft stjórn á því. Flestir vafrar bjóða upp á þá þjónustu að geta lokað á kökur þriðja aðila og samþykkja eingöngu kökur frá fyrsta aðila.

Stilling á notkun vefkaka

Þú getur auðveldlega stillt hvernig vefkökur eru notaðar í þeim vafra sem þú notar hverju sinni og hvernig þú getur lokað fyrir notkun þeirra. Á eftirfarandi hlekk finnur þú góðar upplýsingar um hvernig þú getur stillt notkun á vefkökum og/eða slökkt alfarið á notkun þeirra í mismunandi vöfrum. Smelltu hér til að opna hlekk í nýjum glugga.