













































Möðruvellir II Kjósarhreppi , 276 Mosfellsbær Tilboð
1170,6 m², lóð, herbergi
Jörðin er í eigu Bílfell ehf kt.560785-0549.
Áhugaverð jörð m.a.vegna staðsetningar og hlunninda í aðeins 45 km akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Jörðin býður upp á mjög mikla og marga möguleika sem tengist m.a. ferðaþjónustu.
Einnig mikið og fallegt landsvæði sem gæti hentað undir sumarhúsabyggð, golfvelli, frístundabúskap og hrossabúskap o. fl. Mjög góðar gönguleiðir- og reiðleiðir. Í landinu fannst nýverið heitt vatn sem sveitarfélagið hefur virkjða. Landeigendur hafa rétt á endurgjaldslausu heitu vatni sem nemur 30 mínuntu lítrum.
Jöðriðinni nýtur töluverðra veiðihlunninda af Laxá í Kjós.
Jörðin hefur einnig lítilsháttar fastar vísitölutryggðar tekjur frá sveitarfélaginu af landspildu kringum gamla fjár/hrossarétt sem sveitarfélagið hefur gert upp og er með leigusamning til ársins 2036.
Landstærð er talin vera rúmlega 650 hektarar með fjalllendi. Ræktað land er um 30 hektarar og hefur verið leigt til heyskapar síðan búskapur lagðist af. Beitiland er mikið og gott.
Íbúðarhúsið er byggt árið 1936 og hefur haldið sínu upprunalega útliti að mestu. Það er á tveimur hæðum, á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, geymsla, ásamt stofu og eldhúsi. Á neðri hæð er salerni, bað og þvottahús, ásamt tveimur herbergjum, kyndiklefa og vinnuherbergi.
Húsið hefur verið notað sem sumarbústaður fyrir eigendur jarðarinnar. Húsið gefur möguleika á nýtingu undir ferðaþjónustu með óverulegum kostnaði.
Samfast húsinu er bygging sem hefur verið nýtt sem geymsla og bílskúr. Einnig er gömul hlaða sem hefur verið nýtt undir vélar og annað.
Jörðinni tilheyrir 30 kúa fjós og hlaða byggt árið 1974 því hefur verið breytt í tvo sali sem gefur marga möguleika t.d. leigja undir undir hjólvagna, fellihýsi og tjaldvagna yfir veturinn, og /eða reiðskemmu eða annað sem getur gefið af sér tekjur. Þessi húseign gefur einning þann möguleika að nýtast til ferðaþjónustu, eins og víða hefur verið gert.
Áhugaverð staðsetning á fallegum stað, góð viðskiptahugmynd fyrir kraftmikla og framtakssama aðila.
Innan jarðarinnar er glæsilegt bæjarstæði ef væntanlegur kaupandi vill byggja nýtt íbúðarhús.
Tilvísunarnúmer 10-1746
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is

- Brunabótamat68.865.000 kr.
- Fasteignamat32.468.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð18. jún. 2017
- Flettingar38299
- Skoðendur31603
- 1170,6 m²
- Byggt 1936
- herbergi
- Sérinngangur












































