Lýsing
93,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með vestur svölum og aðgengi að bílakjallara með hófsamri leigu.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með mjög rúmgóðum skápum. Hjónaherbergið er með góðu skápplássi og aukinni lofthæð. Baðherbergið er með sturtu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt fallegum vönduðum innréttingum. Minna svefnherbergið er gott með góðum skápum. Eldhús er með fallegri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Eldhús er opið inn í bjarta stofu með mikilli lofthæð og stórum glugga í vestur. Útgengt er á svalir í vestur úr stofunni. Í kjallara er sér geymsla. Gólfhiti er í íbúðinni, innréttingar sérlega vandaðar og kvartsteinn í borðplötu.
Alls eru bílastæði fyrir rúmlega 800 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum.
Kirkjusandur er endurbyggður borgarhluti við sjávarsíðuna þar sem ný kennileiti Reykjavíkur hafa risið á síðustu árum. Hverfið við Kirkjusand er blönduð byggð íbúða-, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is