Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Öldugata seld 40, 101 Reykjavík 42.900.000 kr.
64,6 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
101 REYKJAVÍK FASTEIGNASALA KYNNIR: Björt og falleg eign í upprunalegum stíl í gamla Vesturbænum. Eignin er 3ja herbergja á efstu hæð í þríbýli í fallegu steinhúsi við Öldugötu. Eignin er skráð 64,6 fm og skiptist í tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Sjarmerandi íbúð með mikinn karakter í klassískum stíl.
Nánari lýsing: Komið er inn í fallegt stigahús sem hefur verið gert upp í upprunalegum stíl. Fallegur stigi er upp að íbúðinni og fyrir framan íbúð er pallur með skápaplássi. Háaloft er fyrir ofan alla íbúðina. Komið er inn í hol og úr því er gengið inn í aðrar vistarverur íbúðarinnar. Á vinstri hönd eru stofa/borðstofa og svefnherbergi með rennihurð á milli og góðu skápaplássi. Einnig hægt að nýta rýmin sem tvær samliggjandi stofur og eru báðar stofur rúmgóðar og bjartar. Baðherbergi er með baðkari og nýju salerni. Rúmgott og bjart svefnherbergi með góðu skápaplássi. Eldhús er er upprunalegt og hefur verið haldið vel við. M.a. hefur innrétting verið hvítlökkuð. Harðparket er á stofu og herbergjum og í holi og eldhúsi er málaður steinn og málaður dúkur á baðherbergi. Sameiginlegt snyrtilegt og nýmálað þvottahús og þurrkherbergi er staðsett í kjallara þar sem hver íbúð er með eigin vél og geymslugangur. Sameiginlegur garður með útgengi úr kjallara er bakatil. Þar er einnig skemmtilegt port fyrir aðliggjandi hús og göngustígur að Ránargötu.
Eigninni hefur verið vel við haldið.
Falleg og björt eign á frábærum og fjölskylduvænum stað í hjarta Reykjavíkur. Steinsnar frá miðbænum, stutt niður á höfn og út á Grandasvæði. Leikskólinn Drafnarborg er staðsettur í portinu á milli Öldugötu og Ránargötu og stutt í aðra þjónustu og allt það frábæra sem gamli Vesturbærinn hefur upp á að bjóða.
Falleg eign á alveg frábærum stað. Stutt á höfnina, leikskólinn Drafnarborg í næsta nágreinni og og stutt alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Sigurey Sigurðardóttir Lögg. fast.sali á 101 Reykjavík fasteignasölu í síma 820-8101 eða á kristin@101.is eða sölumenn í síma 511-3101 og á 101@101.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 50.200,- með vsk

- Brunabótamat21.900.000 kr.
- Fasteignamat36.700.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð12. ágú. 2019
- Flettingar1446
- Skoðendur1256
- 64,6 m²
- Byggt 1931
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur