Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson


























































Birkihlíð í landi Miðengis Grímsnesi , 801 Selfoss Tilboð
82 m², sumarhús, 4 herbergi
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17. Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu Birkihlíð sumarhús landnúmer 169103 í Grímsnesi. Einstök eign í glæsilegu umhverfi - sumarhúsið Birkihlíð við Álftavatni í landi Miðengis í Grímsnesi, Árnessýslu. Landið er skógivaxið 2,89 ha eða 28.900 m2 eignarlandi skilgreint sem þrjár lóðir og er við Vaðlækjarveg sjöttu braut. Landið er hægra megin við veginn þegar ekið er að Ljósafossi, þar sem Álftavatn gengur lengst upp að veginum. Allt landið er gróið, m.a. með háum trjám, skógarbotni, þar er einnig fallegur lækur, stígar og flatir. Húsið er um 82 fm að stærð og er mikið endurnýjað, einnig er á lóðinni útihús (u.þ.b. 35 fm skemma) og útisturta (sérskýli). Sumarhúsið er úr steini á einni hæð, klætt utan með standandi viðarborðum og við það er verönd og stéttar. Í húsinu er stofa, borðstofa, eldhús, gangur, 3 herb. og snyrting. Einnig lítil bygging sem nýtt er sem bátaskýli. Óvenju fallegt umhverfi og eru elstu trén yfir 40 ára. Mögulegt að byggja fleiri sumarhús á landinu. Ný búið að leggja hitaveitu og er hún komin í hús. Heitur pottur. Mjög áhugaverð eign.
Sýna alla lýsingu
Tilvísunarnúmer 13-0626.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / fasteignir.is/mbl.is/fasteignir/ fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm. 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is

- Brunabótamat21.300.000 kr.
- Fasteignamat26.650.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð15. ágú. 2019
- Flettingar10118
- Skoðendur8422
- 82 m²
- Byggt 1964
- 4 herbergi
- 3 svefnherbergi
























































