
















HALLKELSHÓLAR 47 , 805 Selfoss 34.900.000 kr.
190,4 m², sumarhús, 4 herbergi
Húsið er timburhús 150,4 m² byggt árið 2004 og gestahús/geymsla úr timbri 40 m² byggt árið 2018, samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, alrými með stofu og eldhúsi, kjallari með geymslu, herbergi og alrými. Gestahús/geymsla, tvö opin rými, salerni.
Heilsárshúsið skiptist í hæð 74,2 m² og kjallara 76,2 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. .
Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi. Gengið er niður í kjallara um hringstiga frá forstofu.
Tvö svefnherbergi eru á hæðinni. Fataskápar eru í báðum herbergjum, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, sturtuklefi og rúmgóð innrétting með handlaug.
Alrými með stofu og eldhúsi. Eldhúsinnrétting með helluborði og ofni, stálvaskur, flisar á gólfi.
Stofan er með harðparketi á gólfi. Útgengt er frá stofu á stóra timburverönd/viðbyggingu.
Kjallarinn skiptist í litla geymslu, flísalagður gangur með útgengi, stórt gluggalaust alrými (stofa á teikningu) með parketi (neyðarop), varmaskiptir er í rýminu. Herbergi með plastparketi á gólfi, tvöföldum skáp og glugga. Húsið er klætt að utan með liggjandi timburklæðningu.
Timburpallur 153,7 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands liggur meðfram og fyrir framan bústaðinn til suðurs og á milli gestahúss og sumarhúss, afgirtur að mestu leyti.
Gestahús/geymsla er skráð 76,2 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Húsið skiptist í tvö rými; eitt stærra og annað minna, þar inn af er salerni sem er komið að viðhaldi. Varmaskiptir er í stærra rýminu. Húsið er klætt að utan með timburklæðningu, bakhlið gestahúss er þó óklætt. Gestahús/geymsla loft að innan er óklætt.
Eignin stendur á grasi gróinni 1.ha.eða 10.000 m² leigulóð, mikið af trjágróðri er á lóðinni.
Hallkelshólar eru sumarhúsasvæði á kyrrlátum stað í nálægð við Minni Borg í um það bil klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Lokað öryggishlið er inn á sumarhúsalandið við Hallkelshóla, landið er gróið og skjólsælt. Bústaðurinn stendur innst í botnlanga í landinu.
.
Ýtið hér fyrir staðsetningu.
Góð staðsetning stutt í ýmsa þjónustu og afþreyingu. Sundlaugar, golfvellir, Sólheimar, Kerið, Minni-Borg, Þingvellir og Eyrarbakki.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteign.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteign.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, í námi til löggildingar, sölufulltrúi - stílisti - hronn@byrfasteign.is
Irpa Fönn Hlynsdóttir, í námi til löggildingar, - í leyfi.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv verðskrá og kemur fram á kauptilboði.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

- Brunabótamat59.900.000 kr.
- Fasteignamat33.900.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð30. mar. 2021
- Flettingar3971
- Skoðendur3559
- 190,4 m²
- Byggt 2004
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sérinngangur















