Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
295 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Rúmgott og bjart endurnýjað 6 til 7 herbergja parhús á þremur hæðum auk 2ja herb. séríbúðar á jarðhæð með sérinngangi ásamt frístandandi tvöfaldur bílskúr á góðum stað í Seljahverfinu í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem mjög stutt er í skóla og leikskóla. 
Í dag eru 4 svefnherbergi í húsinu en skv. teikningum er gert ráð fyrir 5 herbergjum. Öll eignin hefur nýlega verið uppgerð td. eldhús, þvottahús, baðherbergin, innihurðir, gólfhiti lagður og gólfefni. Þak og þakjárn hefur einnig verið endurnýjað á húsinu og bílskúrnum. 
Á jarðhæð er rúmgóð 2ja herbergja íbúð með sérinngangi sem er í útleigu í dag og eru leigutekjur 240.000kr. á mánuði. Íbúðin er snyrtileg með sér fasteignanúmeri. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 295 fm. og þar af er bílskúr 41,5 fm. og íbúð á jarðhæð 54,8fm.

Nánar um eignina:

1. hæð

Forstofa mjög rúmgóð með fatahengi, fataskúffum og parket á gólfi. 
Forstofurými er í dag afstúkað rými sem er nýtt sem skrifstofa og svefnaðstaða. Skv. teikningu er gert ráð fyrir herbergi. 
Geymsla með parketi og er nýtt í dag sem tölvurými. 

2. hæð
Stofa rúmgóð og björt með arinn og parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á stóran skjólgóðan pall með markísu og út í garð.
Borðstofa mjög rúmgóð með parketi á gólfi. 
Eldhús með nýrri sérsmíðaðri innréttingu, ofn, innbyggður örbylgjuofn, eldavél með innbyggðri viftu, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur amerískur ísskápur, eldhúskrókur með parket á gólfi.
Þvottahús er innangengt af eldhúsi, rúmgott með glugga, innrétting með miklu skápaplássi og gert er ráð fyrir tveimur þvottavélum og einum þurrkara og flísar á gólfi.
Gestasalernið er nýuppgert með upphengdu salerni, flísalagt í hólf og gólf fyrir utan einn vegg.

3. hæð 
Stigapallur með parketi. 
Hjónaherbergi mjög rúmgott með góðu skápaplássi, innbyggð lýsing og parket á gólfi. 
Herbergi II er með fataskáp, parket á gólfi ásamt innbyggðri lýsingu.
Herbergi III með parket á gólfi ásamt innbyggðri lýsingu.
Baðherbergið er nýuppgert með innangengri sturtu, innréttingu, upphengdu salerni, flísalagt í hólf og gólf fyrir utan einn vegg og innbyggðri lýsingu.
Stórt geymsluloft er yfir hæðinni.

Íbúð á jarðhæð
Íbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Forstofa með góðu skápaplássi og flísar á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa björt með parketi á gólfi og er opin við eldhús. 
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, gluggi, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og flísalagt í hólf og gólf. 
Innangengt er í geymslu frá svefnherberginu sem í dag er nýtt sem auka herbergi.

Bílskúr
Tvöfaldur frístandandi bílskúr með hefðbundnu rafmagni ásamt þriggja fasa rafmagni, heitu/köldu vatni og flísar á gólfi.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eð aá netfanginu gudbjorg@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. ágú. 2019
65.750.000 kr.
70.000.000 kr.
240.2 m²
291.424 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík