Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur 5503000 - www.fasteignamidstodin.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson

Guðnabakki , 311 Borgarnes Tilboð

230,5 m², lóð, 0 herbergi

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu jörðina Guðnabakka landnúmer 134866 í Borgarbyggð.
Guðnabakki er all stór jörð miðað við það sem gerist í Borgarfirði, talin milli 450-500 hektarar að stærð. Helstu einkenni jarðarinnar er mikil fjölbreytni í landslagi og landkostum. Þar má finna grasi vaxna brokflóa, valllendi, mýrlendi, skóglendi, gróin klettabelti og þurra mela víða. Ræktanlegt land er mikið, trúlega allt að 270 hektarar. Jörðin er ein af meiri laxveiðijörðum á Íslandi, með stóra hlutdeild af laxveiði í Þverá í Borgarfirði. Sum ár hafa 15-20% af heildarveiði í ánni komið upp úr einum hyl fyrir landi jarðarinnar, Klapparfljóti. Kirkjustrengur er annar veiðistaður í landi Guðnabakka, sem flestir eða allir veiðimenn við Þverá þekkja. Talsverð sjóbirtingsgengd er í veiðistaði neðarlega í ánni fyrir landi Guðnabakka, aðallega í Þórunnarhyl sem er sennilega stærsti veiðistaður í Þverá. Í landi Guðnabakka er gnægð af heitu vatni og er aðeins lítill hluti þess nytjaður með borholu sem gerð var 1964. Hún er um 25 metra djúp og gefur 64°C heitt vatn. Undir Dýjahlíð í austanverðri jörðinni, sem fyrr á öldum tilheyrði landnámsjörðinni Ísleifsstöðum er ein stærsta uppspretta af köldu vatni í héraðinu. Vatnsmagnið sem þar rennur fram hefur ekki verið mælt, en það er talsvert afrennsli sem skilar sér til Þverár. Á hinum fornu Ísleifsstöðum eru friðlýstar fornminjar, en talið er að tóftirnar sem þar má sjá séu af stærsta langhúsi sem talið er hafa verið reist var á Íslandi á Víkingaöldinni. Þjóðminjasafnið / Fornleifastofnun munu rannsaka tóftirnar á næstu árum, en ekki hefur legið fyrir fjármagn til þess. Í skóginum á Guðnbakka er talsvert af Rjúpu, en Rjúpa verpir þar víða. Skóglendið er talið milli 50 - 70 ha. að stærð. Gæsaveiði er oft mikil haust og vor en hefur lítið verið stunduð seinni árin. Einu byggingará jörðinni er ágæt hlaða. Jörðin selst ásamt jörðinni Selhaga sem er í eigu sömu aðila.

Tilvísunarnúmer 10-2462

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang:
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Úlfar Freyr Jóhannsson lögmaður og lögg. fasteignasali sími: 550 3000 ulfar@fasteignamidstodin.is

Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat14.120.000 kr.
  • Fasteignamat30.411.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð15. júl. 2020
  • Flettingar15638
  • Skoðendur12926
  • 230,5 m²
  • 0 herbergi



Senda fyrirspurn vegna Guðnabakki, 311 Borgarnes

Verð:Tilboð Stærð: 0 m² Tegund:Jörð/lóð Herbergi: 0
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignamiðstöðin

Sími: 5503000
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
www.fasteignamidstodin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Magnús Leopoldsson

Eignin var skráð 15 júlí 2020
Síðast breytt 13 september 2023

Senda á vin eignina Guðnabakki, 311 Borgarnes

Verð:Tilboð Stærð: 0 m² Tegund:Jörð/lóð Herbergi: 0
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignamiðstöðin

Sími: 5503000
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
http://www.fasteignamidstodin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Magnús Leopoldsson

Eignin var skráð 15 júlí 2020
Síðast breytt 13 september 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store