





























































Bryggjugata 6 (502), 101 Reykjavík 255.000.000 kr.
180,9 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Athugið að innimyndir eru teknar úr sýningaríbúð 307 v. Austurhöfn og endurspegla ekki endilega þá íbúð sem hér er kynnt heldur frekar sýndar til að gefa betri mynd af innréttingum og ásýnd íbúða.
Íbúð 502 er á fimmtu hæð. Frá íbúðinni er fallegt útsýni út yfir Faxaflóa að Esjunni. Í henni eru tvennar svalir og tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi auk þess sem útgegnt er á morgunsvalir frá öðru herberginu. Lyfta opnast beint inn í íbúðina, sem tryggir næði og þægilega aðkomu. Eldhúsið er vel búið með tveimur ofnum, vínkæli og stórum ísskáp. Íbúðin er skráð 165,3 fm og því til viðbótar er 15,6 fm geymsla. Rúmgóð forstofa með gestasnyrtingu og fatahengisherbergi og þvottahúsi inn af því. Glæsileg stofa með gólfsíðum gluggum. Þaðan er gengið út á 8,9 fm svalir þar sem horft er yfir höfnina og með útsýni til vesturs. Íbúðinni fylgja tvö stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu, sem einungis er ætluð íbúðareigendum í Austurhöfn.
Nánari upplýsingar veitaJón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.isÓskar R. Harðarson hdl og lögg. fasteignasali í síma 661-2100 eða oskar@miklaborg.isÞröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.isÞórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.isJason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515 eða jko@miklaborg.is
- Brunabótamat0 kr.
- Fasteignamat37.800.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð10. sep. 2020
- Flettingar1093
- Skoðendur905
- 180,9 m²
- Byggt 2019
- 3 herbergi
- 3 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Bílskúr
- Lyfta

Jón Rafn Valdimarsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
jon@miklaborg.is
569-7000




















































