


































Mánatún 3, 105 Reykjavík 83.900.000 kr.
143,5 m², fjölbýlishús, 4 herbergi
Nánari lýsing: Íbúðin er rúmgóð forstofa með flísum og mjög góðu skápaplássi bæði fjórföldum skáp og auka skóskáp. Hol með parketi. Rúmgott hjónaherbergi með miklum skápum og gert ráð fyrir sjónvarpi. Parket. Herbergi með parketi og mjög góðu skápaplássi. Glæsilegt flísalagt baðherbergi með innréttingu og stórum sturtuklefa. Handklæðaofn og mikið skápapláss. Sérþvottahús með mjög góðu skápaplássi og er innrétting í þvottahúsi. Borðstofa með parketi og vinnuherbergi innaf borðstofu, hert gler í rennihurðum sem loka af skrifstofuherbergið, skápar og innréttingar í skrifstofuherberginu fylgja. Glæsilegt flísalagt eldhús, eikarinnrétting , eldaeyja og mjög vönduð tæki, áfast eldhúsborð, granít á borðum, opið yfir í parketlagða stofu, gengið er úr stofu út á stóra afgirta timburverönd sem nær meðfram íbúðinni bæði til suðausturs, suðurs og suðvestur.
Mjög góðar sérsmíðaðar eikarinnréttingar frá BRÚNÁS og íbúðin er einstaklega björt og skemmtilega skipulögð. Lyfta úr sameign í kjallara og þar er sérgeymsla íbúðarinnar með hillum og mjög góð hjóla og vagnageymsla. Húsið er álklætt lyftuhús á einstaklega góðum stað. Aukin lofthæð og er hiti í gólfum.
Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Ísak Guðmundsson Viðskiptafræðingur / Nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 663-4392, tölvupóstur kjartan@miklaborg.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.500 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Miklaborg fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

- Brunabótamat53.190.000 kr.
- Fasteignamat72.600.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð12. jan. 2021
- Flettingar2459
- Skoðendur2242
- 143,5 m²
- Byggt 2010
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Bílskúr

























