



























Álfhólsvegur 73 , 200 Kópavogur 64.900.000 kr.
108,7 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
Um er að ræða nýja rúmgóða 108.7 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með séringangi í nýju fjórbýlishúsi við Álfhólsveg í Kópavogi.
Íbúð er 104.4 fm og geymsla 4.3 fm. Sérafnotareitur með íbúð. Íbúð er afhent fullbúin án gólfefna en búið er að flísaleggja votrými.
ÍBÚÐ ER LAUS AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Íbúð skiptist í:
Anddyri, hol/gang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi,
baðherbergi, vinnuherbergi/geymsla innan íbúðar, sérgeymslu og sérafnotareit framan við hús.
Nánari lýsing á eign:
Íbúð er á jarðhæð með sérinngangi.
Komið er inn í anddyri með fataskáp.
Stofa/borðstofa og eldhús er opið og bjart alrými með útgengi út á sérafnotareit.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðum skápum. Barnaherbergi er rúmgott og með fataskáp.
Baðherbergið er rúmgott og skilast með góðri innréttingu í kringum vask, WALK-IN sturtu með glerskilrúmi, vegghengt salerni á baðherbergi, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherberginu.
Vinnuherbergi/skrifstofa innan íbúðar. Góð sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign á jarðhæð. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í sér húsi við bílaplan.
Nýtt fjórbýlishús á grónum stað við Álfhólsveg í Kópavogi.
Húsið er staðsteypt og skilast steinað að utan.
Frábær staður nýjar íbúðir í grónu og eftirsóttu hverfi.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á en það er 0.3% af endanlegu brunabótarmati.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

- Brunabótamat43.450.000 kr.
- Fasteignamat52.800.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð12. jan. 2021
- Flettingar324
- Skoðendur290
- 108,7 m²
- Byggt 2020
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Verönd
- Laus strax
- Útsýni
- Garður
- Þvottahús

Sveinn Eyland Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
sveinn@landmark.is
690-0820


















