




































Hólaberg SELD 82, 111 Reykjavík 117.700.000 kr.
470,6 m², einbýlishús, 8 herbergi
Fold fasteignasala, s. 5521400 kynnir: Fallegt vel viðhaldið einbýlishus ásamt góðu iðnaðarhúsnæði með innkeyrsludyrum á rólegum stað í Breiðholti.
Einbýlishúsið er á tveimur hæðum ásamt kjallara og er skráð samtals 293,1 fm, atvinnuhúsnæðið er hæð og kjallari, það er skráð 177,5 fm.
Einbýlishúsið: 1. hæð: Andyri er flísalagt með fatahengi, gestasnyrting er flísalögð.
Eldhús er með fallegri, hvítri beykiinnréttingu, nýlegur Siemens bakaraofn í vinnuhæð, og spanhelluborð. Rúmgóð borðaðstaða er við eldhúsið.
Gengt er frá eldhúsi í þvottaherbergi.
Stofa og borðstofa eru með fallegu parketi en arinstofan er flísalögð með fallga hlöðnum arni. Gengt er frá arinstofu út á stétt og þaðan í garðinn.
2.hæð: Breiður stigi er upp á aðra hæð: Þar er í dag rúmgott hjónaherbergi og fataherbergi inn af því, parket er á gólfum. gengt er út á svalir frá hjónaherberginu.
Annað rúmgott svefnherbergi með skápum er á hæðinni.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa. Hol með parketi.
Gott sjónvarpshol/vinnurými er einnig á hæðinni. Auðvelt væri að breyta skipulagi og fjölga svefnherbegjum.
Iðnaðarhúsnæðið er með góðum innkeyrsludyrum. Það skiptist í hæð og kjallara og bíður upp á mikla möguleika, m.a. að breyta því í íbúðir. Á jarðhæð er skrifstofa og salerni og gott vinnurými með mikla möguleika. Gott afgreiðsluop er á milli hæða og getur talía fylgt með. Járnstigi er niður í opið rými í kjallara Fyrir framan það eru bílastæði.
Fold fasteignasala, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. fold@fold.is
Sími 552 1400 / utan skrifstofutíma: ,Viðar 694-1401 , Einar 893-9132 Gústaf 895-7205 , Sævar 844-1965 og Hlynur s.624-8080.
www.fold.is
Við erum á Facebook

- Brunabótamat109.900.000 kr.
- Fasteignamat109.600.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð30. jan. 2021
- Flettingar1867
- Skoðendur1671
- 470,6 m²
- Byggt 1981
- 8 herbergi
- Suðursvalir
- Garður


































