




























Hafnarbraut 11, 200 Kópavogur 47.900.000 kr.
79,6 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
Nýuppgerð og glæsileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með svölum og stórum sólpalli í nýuppgerðu lyftuhúsi við Hafnarbraut 11 á Kársnesinu. Eignin er skráð 79,6 fm. og góð lofthæð er í íbúðinni. Góður leikvöllur er á lóðinni sem hægt er ganga beint útá af sólpalli. Húsið og allar íbúðir í því eru nýuppgerðar. Frábær staðsetning á Kársnesinu þar sem mikil uppbygging er í gangi og stutt í alla helstu þjónustu. Eignin er laus við kaupsamning.
Anddyri er parketlagt með góðum skápum.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er á góðar svalir og tæplega 30 fm. sérafnotaflöt.
Eldhús er opið við stofu. Ísskápur, fyrstiskápur og uppþvottavél eru innbyggð.
Baðherbergi er flísalagt með innangengri sturtu.
Hjónaherbergi er parketlagt með góðum skápum.
Svefnherbergi með góðum skápum. Parket á gólfi.
Þvottahús með vaski er innan íbúðar. Flísalagt í hólf og gólf.
Rúmgóð sérgeymsla með góðri lofthæð í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Góður leikvöllur er á lóðinni.
Lyfta er í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu styrmir@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

- Brunabótamat28.990.000 kr.
- Fasteignamat40.050.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð22. feb. 2021
- Flettingar1434
- Skoðendur1171
- 79,6 m²
- Byggt 1988
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Lyfta
- Laus strax
- Útsýni
- Þvottahús

Styrmir Þór Sævarsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
styrmir@trausti.is
846-6568
























