




























Hverfisgata 85, 101 Reykjavík 48.900.000 kr.
66,8 m², fjölbýlishús, 2 herbergi
Einstaklega fallega og nýlega 66,8 fm. 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang. Stæði í bílageymslu fylgir sem er einstaklega vel staðsett og rúmgott. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Hægt að vera með gæludýr. Svefnherbergi er rúmgott. Sérverönd úr timbri. Innfelld lýsing í loftum. Eignin er laus fljótlega.
Samkvæmt þjóðskrá er eignin merkt 0110 ásamt stæði í bílageymslu merkt BO46 og sérgeymsla merkt 01-111. Birt stærð er 66,8 fm.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasali s. 770-0309 eða th@landmark.is
Frábærlega staðsett íbúð í miðborg Reykjavíkur. Húsið er hluti af heildaruppbyggingu á hluta Baróns- og Laugavegsreit með nýjum göngustígum, uppgerðum eldri húsum auk nýbygginga. Fyrirhugaðar eru listskreytingar á svæðinu í samvinnu við Reykjavíkurborg. Hverfið liggur ákaflega vel við samgöngum og styður vel við bíllausan lífsstíl fyrir þá sem það kjósa.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með steinborðplötu, eldunareyja með háf yfir. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt með harðparket á gólfi, útgengt á sérverönd
Svefnherbergi: Rúmgott með harðparket á gólfi, stór fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturta flísalögð, afmörkuð með öryggisgleri. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara þar inni. Falleg innrétting í kringum handlaug og skápar við þvottavélaaðstöðu.
Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Stæði í bílageymslu afar rúmgott og vel staðsett.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

- Brunabótamat38.930.000 kr.
- Fasteignamat45.400.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð23. feb. 2021
- Flettingar238
- Skoðendur209
- 66,8 m²
- Byggt 2019
- 2 herbergi
- 1 baðherbergi
- 1 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Verönd
- Lyfta
- Garður
- Þvottahús

Þórarinn Thorarensen Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
doddi@landmark.is
770-0309



















