Lögheimili Eignamiðlun ehf
Skipholt 50d. 105 Reykjavík og Skólabraut 26, 300 Akranes
5309000 - www.logheimili.is/
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Bergmann

Kristín Skjaldardóttir


























Þóroddsstaðir 21, 803 Selfoss 27.500.000 kr.
64,1 m², sumarhús, 4 herbergi
Um er að ræða mjög fallegan sumarbústað með fallegu útsýni yfir Laugarvatn. Húsið er 64,1 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Bústaðurinn er allur nýlega yfirfarinn, búið að setja ný blöndunartæki, nýlegur sturtuklefi, skápur, vaskur og spegill á baði og nýlegt parket á öllum gólfum. Búið að setja nýtt dekk á sólpallinn nú í sumar 2020. Hægt er að kaupa öll húsgögn eftir nánari samkomulagi við seljanda. Mjög nýlegur rafmagnshitapottur. Húsið stendur á 6550 fm leigulóð. Sumarhúsið hefur verið í leigu umsjón og því eru miklir tekjumöguleikar í boði. Einnig er nýtt (okt 2020) rafmagnshlið að svæðinu sem þarf að fara í gegn sem hindrar umferð að svæðinu
Komið er inn í forstofu með fallegum gangi inn í aðalrými.
Baðherbergið er nánast nýtt, kominn nýr sturtuklefi, vaskur og skápur, spegill með ljósi og klósett.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, eitt með kojum (svefnpláss fyrir 4) og svo er hjónaherbergið með fataskáp. Stórt svefnloft sem rúmar ca 6-8 manns.
Samtals er svefnrými fyrir amk 12-14 manns.
Eldhúsið er með góðri innréttingu, uppþvottavél, nýlegum blöndunartækjum, eldavél með bakaraofni ásamt, ískáp og örbylgjuofni.
Frá alrými er útgengi út á timburverönd með glæsilegt útsýni.
Skipt var um viðardekk á sólpalli núna í sumar. Rúmgóður rafmagnshitapottur.
Stórt bílastæði er við húsið og gott aðgengi er að bústaðnum.
Falleg eign sem vert er að skoða í ca 50 min fjarlægð frá Reykjavík.
Allar frekari upplýsingar veitir:
Egill Ragnar Sigurðsson viðskiptafræðingur og í námi til fasteignasala sími 835-0860, netfang: egill@logheimili.is
Heimir Bergmann löggiltur fasteignasali heimir@logheimili.is
Allar nánar upplýsingar og skoðun annast:
Egill R. Sigurðsson viðskiptafræðingur og í námi til löggildingar fasteignasala sími 835-0860 / egill@logheimili.is
Heimir Bergmann löggiltur fasteignasali heimir@logheimili.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 14 ára starfi við fasteignasölu á Íslandi.
Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við mig eignum í sölu- eða leigumeðferð. Hringdu núna í síma 835-0860 og pantaðu tíma fyrir þína eign.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Lögheimili eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Ábyrg þjónusta í áratug. Lögheimili Eignamiðlun var stofnuð 2007. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum

- Brunabótamat24.500.000 kr.
- Fasteignamat18.100.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 3. mar. 2021
- Flettingar1465
- Skoðendur1294
- 64,1 m²
- Byggt 2005
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Verönd
- Garður
- Þvottahús

Heimir Bergmann Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Lögheimili Eignamiðlun ehf
Skipholt 50d. 105 Reykjavík og Skólabraut 26, 300 Akranes
heimir@logheimili.is
630-9000
























