Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
72 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR - FRÁBÆRT SPA - STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD*
Glænýjar og vandaðar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað á La Zeniasvæðinu, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt göngufæri í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.

Upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja-4ra herb. vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru allar með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði , miðhæðum með stórum svölum eða á efstu hæð og þá með stórum svölum og sér þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með SPA aðstöð, upphitaðri sundlaug, sauna og líkamsræktaraðstöðu. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar frá íbúðum á efri hæðum.

Stæði í lokuðu bílakjallara fylgja.
Auk þess hægt að kaupa sér geymslu með íbúðinni.
Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, vinsælu verslunarmiðstöðinni með úrval verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega. Íbúðirnar eru tilbúnar og til afhendingar við kaupsamning og einnig er hægt að fá íbúðir á byggingarstigi til afhendingar á næstu mánuðum.

Verð:
4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 221.000 Evrum+ kostn. (ISK 30.900.000 gengi 1Evra/140ISK)
4ra herb íbúð á jarðhæð með sér garði, verð frá 225.000 evrum + kostn. (ISK 31.500.000 gengi 1 Evra/140ISK)
4ra herb penthouse íbúð með sér þaksvölum, verð 333.000 evrur + kostn. (ISK 46.600.000 gengi 1 Evra/140ISK)

Síðasta blokkin var að koma í sölu, aðeins örfár íbúðir eftir.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánareignir aðstoða kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og við tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, innisundlaug, spa, líkamsrækt, air con, bílakjallari, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.