
.jpg)











Álhella 28, 221 Hafnarfjörður 9.900.000 kr.
32 m², atvinnuhúsnæði, 0 herbergi
32 m², atvinnuhúsnæði, 0 herbergi
Trausti fasteignasala kynnir: Geymslubil að Álhellu 26-28 í Hafnarfirði, afhending í maí-júní 2022.
Bókið skoðun hjá Ragnari í síma 699-8282 eða með tölvupósti á ragnar@trausti.is, eða hjá Kristjáni Baldurssyni lgfs á kristjan@trausti.is
Geymslubilunum verður skilað með Epoxy á gólfi og niðurfalli, vaskur með heitu og köldu vatni, lýsing í lofti, ofn til upphitunar, rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni, einn 3ja fasa rafmagnstengill við rafmagnstöflu, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara, ljósarofi og rafmagnstengill nálægt hurð. Bílskúrshurð með inngönguhurð, breidd 250 cm., hæð 259 cm.
Útveggir:
Allar veggja samstæður eru gerðar úr forgerðum steinullareiningum (harðpressuð steinull sem klædd er með 0,6mm þykku aluzinki.) Einingarnar eru 100 mm á þykkt
Þak:
Þak einingar eru gerðar úr 150 mm þykkum steinullareiningum.
Gólf:
Gólf er steypt, járnbent og vélslípað með niðurfalli.
Raflagnir:
Raflagnir eru utanáliggjandi á veggjum og eru sýnilegar, 3ja fasa rafmagn í rafmagnstöflu í hverjum skúr
Vatnslagnir:
Vaskur með heitu og köldu vatni, ofn til upphitunar innst í skúrnum.
Snyrting:
Snyrting er staðsett í C húsi, matshluta 03 og er hún í sameign allra mhl (01,02,03,04 og 05.)
Bílastæði:
Bílastæði á lóð eru 58 stk, þar af 5 fyrir hreyfihamlaða.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ragnar Magnús Einarsson í s: 699-8282, á ragnar@trausti.is eða Kristján Baldursson, kristjan@trausti.is s. 867-3040
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

- Brunabótamat0 kr.
- Fasteignamat542.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð20. apr. 2022
- Flettingar723
- Skoðendur653
- 32 m²
- 0 herbergi

Kristján Baldursson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
kristjan@trausti.is
867-3040

