Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson

Kjartan Hallgeirsson

Þórarinn M. Friðgeirsson

Hilmar Þór Hafsteinsson

Guðlaugur Ingi Guðlaugsson

Magnea Sverrisdóttir

Brynjar Þór Sumarliðason

Daði Hafþórsson

Bjarni Tómas Jónsson

Herdís Valb. Hölludóttir

Ólafur H. Guðgeirsson

Þóra Birgisdóttir

Gunnar Helgi Einarsson

Kári Sighvatsson

Unnar Kjartansson

Lárus Ómarsson

Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir

Úlfar Freyr Jóhannsson














































Garðastræti 42, 101 Reykjavík 250.000.000 kr.
269,4 m², einbýlishús, 10 herbergi
Eignamiðlun kynnir:
Garðastræti 42, 269.4 fm mikið endurnýjað einbýlishús á þremur hæðum sem stendur ofarlega í lóðinn með mjög góðu útsýni m.a tjörnin og miðborgin. Húsið hefur verið endursteinað að utan, flestir gluggar endurnýjaðir o.m.fl. 7 svefnherb. tvö baðherbergi, tvær stofur o.fl. Frábær staðsetning, sérbílastæði og möguleiki að byggja bílskúr. Góð ræktuð lóð. Bókið skoðun hjá Kjartani lögg fs í síma 824-9093 eða hjá Þórarni lögg fs í síma 899-1882Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 200-3811, nánar tiltekið eign merkt 01-01, birt heildarstærð 269.4 fm.
Eignin skiptist í: Aðalhæðin: Forstofa, hol, tvær stofur og eldhús.
Efri hæðin: 4 svefnherbergi og baðherbergi.
Jarðhæð: 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
Gengið inn á miðhæð hússins og einnig er bakinngangur og sérinngangur í kjallarann.
Forstofa, hol með flotuðu gólfi, gengið inn í alrými hússins.
Stofa parketlögð, einstaklega gott útsýni yfir Þingholtin og á bæði Hallgrímskirkju
Borðstofan er parketlögð og er opið frá borðstofu frá eldhúsinu.
Eldhús með flotuðu gólfi og góðri viðarinnréttignur, úr eldhúsi er gengið út á stóra viðarverönd.
Efri hæðin: Rúmgott hol með góðum skápum.
Þrjú barnaherbergi með parketi og eru tvö þeirra mjög rúmgóð, skápar eru í tveimur herbergjum.
Hjónaherbergið er rúmgott, parketlagt og með góðum skápum.
Baðherbergið er með flotuðu gólfi, vegghengdu salerni og góðri innréttingu. Út frá baðherberginu eru góðar svalir.
Háaloft er yfir efri hæðinni sem hentra vel sem geymsla fyrir minna notaða hluti. Endurnýjaður þakgluggi
Jarðhæð með sérinngangi og einnig er innangengt milli hæða.
Þrjú herbergi eru á jarðhæðinni, öll rúmgóð og er eitt þeirra með flotuðu gólfi og hin herbergin eru parketlögð.
Einnig er baðherbergi á jarðhæðinni með sturtu sem er steypt. Mosaik flísar á veggjum og vegghengt salerni.
Þvottahús: þar er gólfið flotað, gott skápapláss og vaskur.
Góð geymsla er einnig á jarðhæðinni og fyrir utan inngang er köld geymsla.
Garðurinn: Lóðin sem húsið stendur á er 575,5 fm og er garðurinn fallegur og upplýstur. Bílastæði fyrir tvo bíla með hita í stétt og hleðslu fyrir rafmagnsbíla.
Nýlega er búið að jarðvegsskipta ofan við húsið hægra megin og þar stóð til að setja góða jarðgeymsla og búið er að helluleggja og fl.
Nánari upplýsingar veita Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is, Kjartan Hallgeirsson í síma 824-9093, kjartan@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

- Brunabótamat81.200.000 kr.
- Fasteignamat138.300.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð13. maí. 2022
- Flettingar1698
- Skoðendur1468
- 269,4 m²
- Byggt 1948
- 10 herbergi
- 7 svefnherbergi

Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
thorarinn@eignamidlun.is
899-1882












































