Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
fjölbýlishús

Víkurbraut 17

230 Reykjanesbær

Tilboð

Fasteignanúmer

F2508279

Fasteignamat

75.600.000 kr.

Brunabótamat

7.970.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2019
svg
492 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Aukaíbúð
svg
Tvennar svalir

Lýsing

CROISETTE.HOME KYNNIR Í EINKASÖLU EINSTAKA EIGN PENTHOUSE MEÐ ÞAKKSVÖLUM OG SÉR STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT


Falleg og vel skipulögð penthouse íbúð á frábærum stað í keflavík ásamt  stæði í bílageymslu.
Eignin er alls 246,0 fm að stærð.
Fallegt útsýni er úr íbúðinni til allra átta.

Íbúðin afhendist í núverandi ástandi þ.e. fullbúin að utan og tilbúin undir tréverk.
Skilalýsing þessi fjallar einungis um meginatriði, en er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök frágangsatriði, lýsingin er fylgiblað kaupsamnings.
Víkurbraut 17 er fjölbýlishús á 9 hæðum. Fyrst er bílageymslan með innkeyrslu frá Bakkastíg þá geymsluhæð með geymslum og einni íbúð, 1.-5.
hæð með þremur íbúðum á hverri hæð og loks 6.-7. hæð með tveimur penthouse-íbúðum. Lyfta er í húsinu og nær hún frá bílageymslu og upp á 6. hæð.
Bílageymsla (-1. hæð)
Í kjallara hússins er bílageymsla með stæðum fyrir 18 bíla, tækjaklefi, sorpgeymsla og tveir bílskúrar. Frá bílageymslu er innangengt að lyftu og stigahúsi.
Geymsluhæð (0. hæð)
Á þessari hæð er íbúð 001 sem er 3ja herbergja með stórum (76,3m²) hellulögðum séreignargarði með snjóbræðslu (þak yfir bílageymslu).
Einnig 18 sérmerktar geymslur auk hjóla og vagnageymslu
1. hæð
Anddyri er með póstkössum og mynddyrasíma, gólf flísalagt. Rafdrifnar rennihurðir með skynjurum eru fyrir anddyri. Þaðan er gengið að stiga, lyftu og inn á íbúðargang.
6. hæð
Á hæðinni eru tvær stórar og glæsilegar penthouse-íbúðir á 2 hæðum. Þeim báðum fylgja glerlokaðar svalir á 6. hæð en á 7. hæð fylgja báðum þessum íbúðum stórar hellulagðar þaksvalir með snjóbræðslu að auki.
Í íbúðunum er steyptur stigi milli hæða.
Íbúðirnar afhendast tilbúnar undir tréverk.
Ytri frágangur og lóð.
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin svo og bílastæði. Að utan er húsið einangrað með steinull og klætt með flísum, báruáli og sléttu áli. Þak yfir 6. hæð og bílageymslu er steinsteypt með tvöföldum pappalagi, einangrun, hitaspíral og hellulagt er þar ofan á. Þak yfir 7.
hæð sem er inndregin er klætt báruáli.
Svalir eru steinsteyptar, með hitaspíral og innfrarauðum geislahitara.
Handrið er úr áli og klætt hertu gleri sem er opnanlegt ofan handriðs.
Handrið á bílageymsluhúsi og á þaksvölum er steinsteypt.
Gluggar, svalahurðir og opnanleg fög eru málaðir trégluggar að innan með álfölsum að utan og þreföldu gleri.
Aðalhurð er rafdrifin álhurð með skynjurum.
Lóð afhent fullbúin, bílastæði malbikuð. Hellulagðar stéttar eru fyrir framan húsið og að anddyrum. Hitalögn er undir þeim. Rampur að bílageymslu er upphitaður.
Sameign
Öll sameign afhent fullbúin. Anddyri flísalagt, stigar og stigapallar eru teppalagðir.
Sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla er með epoxy á gólfum. Allir veggir og loft í sameign eru máluð. Hiti er í gólfum.
Sérgeymslur
Öllum íbúðum fylgja sérgeymslur á geymsluhæð (0.hæð). Þær afhendast málaðar og gólf lökkuð. Léttir veggir milli geymsla eru úr clickboard-plötum klæddum á blikkstoðir. Hurðir á geymslum eru yfirfelldar hvítar hurðir. Hillur fylgja öllum geymslum. Allar geymslur eru loftræstar með útsogi. Hiti er í gólfum.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Bjartur Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 899 9090 eða styrmir@croisette.is og einnig í síma 569 9090 og info@croisette.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Styrmir Bjartur Karlsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Croisette Iceland ehf
Hafnarstræti 19 - 101 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Hafnarstræti 19 - 101 Reykjavík
img

Styrmir Bjartur Karlsson

Hafnarstræti 19 - 101 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Hafnarstræti 19 - 101 Reykjavík

Styrmir Bjartur Karlsson

Hafnarstræti 19 - 101 Reykjavík